Fréttir af skipulagsmálum
Grendarkynning á tillögu að breyttu deiliskipulagi á Seltjarnarnesi
Í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér með til kynningar grendarkynning að breytingu á deiliskipulagi á Seltjarnarnesi.
Deiliskipulag Bollagarða, Hofgarða og Melabrautar, breyting vegna Bollagarða 73-75.
Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti þann 18.júní 2018, í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að grendarkynna tillögu að breyttri nýtingu á lóðinni Bollagarðar 73 -75.
Gildandi deiliskipulag var samþykkt í bæjarstjórn 22.04.2017, og birt í B-deild stjórnartíðinda 9.mái 2017.
Breytingin felur m.a. í sér leyfi fyrir skúrbyggingu sem er áföst við núvarandi húsnæði þ.e. að heimilt verði að byggja áfastan geymsluskúr innan byggingarreits við norðurhlið hússins.
Tillagan hefur legið frammi á skrifstofu Seltjarnarnesbæjar að Austurströnd 2, virka daga frá kl. 8:00 til 14:00, frá 20. júní til og með 26. júlí 2018.
Hér má sjá tillöguna á heimasíðunni www.seltjarnarnes.is undir liðnum skipulagsmál.
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér fram komnar breytingar. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til Þjónustuvers Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 2, 170 Seltjarnarnes, merkt b.t. byggingarfulltrúa, eða á netfangið postur@seltjarnarnes.is eigi síðar en 16. ágúst 2018. Vinsamlegast gefið upp netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti.
Seltjarnarnesi, 18. júlí 2018.
Sigurður Valur Ásbjarnarson.
f.h. Skipulags- og umferðanefndar Seltjarnarnesbæjar
Deiliskipulag Bollagarða, Hofgarða og Melabrautar - Bollagarðar 73-75