Fréttir af skipulagsmálum
Auglýsing um deiliskipulag á Seltjarnarnesi
Bæjarstjórn Seltjarnarness auglýsir hér með til kynningar tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóð Lækningaminjasafns við Nesstofu skv. 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum.
Afmörkun
Skipulagssvæðið afmarkast til norðurs, vesturs, austurs og suðurs af svæði skilgreindu sem svæði fyrir þjónustustofnanir / opið svæði til sérstakra nota í Aðalskipulagi Seltjarnarness 2006 – 2024, við Nesstofu og Lyfjafræðisafn.
Markmið
Markmið með tillögu að breyttu deiliskipulagi fyrir lóð Lækningaminjasafns eru að :
- skilgreina lóð Lækningaminjasafnsins
- breyta og stækka byggingarreit Lækningaminjasafnsins
- auka byggingarmagn Lækningaminjasafnsins ofanjarðar
- heimila byggingu kjallara á einni hæð undir Lækningaminjasafninu
- þá er gerð grein fyrir fyrirkomulagi bílastæða innan skipulagssvæðisins
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan verður til sýnis á bókasafni Seltjarnarness, Eiðistorgi 11, 2.hæð frá 14. mars til og með 25. apríl 2008.
Tilaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir lóð Lækningaminjasafns
1.6 mb
Skýringamynd við tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð Lækningaminjasafns
1.8 mb
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Skriflegum athugasemdum ef einhverjar eru skal skilað á bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2, eigi síðar en 25. apríl 2008.
Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja tillöguna.
Auglýsing um deiliskipulag á Seltjarnarnesi
56 kb
