Lambastaðahverfi
Kæru Seltirningar
Hafin er vinna við gerð deiliskipulags Lambastaðahverfis. Skipulagssvæðið afmarkast af Skerjabraut til norðvesturs, Nesvegi til norðausturs, bæjarmörkum að Reykjavík til austurs og sjó til suðvesturs.
Með deiliskipulaginu verður stefnt að því að fá heildræna mynd af hverfinu, svo standa megi markvisst að þróun þess til framtíðar og auðvelda ákvarðanir í einstökum málum. Deiliskipulagið verður unnið innan ramma Aðalskipulags Seltjarnarness 2004-2024.
Markmið og leiðarljós:
Áhersla verður lögð á að varðveita og nýta sérstöðu Lambastaðahverfisins, sem einkennist af nálægð við sjó og fjöru, fallegri sjávarsýn og góðum tengingum við verslun og þjónustu, íbúum hverfisins í hag.
Kappkostað verður að bæta umhverfi svæðisins þar sem þess gerist þörf og styrkja gott og fallegt heildaryfirbragð, en leyfa sérkennum þess og skemmtilegum margbreytileika byggða og náttúru að njóta sín.
Leitast verður við að beina umferð akandi og gangandi á markvissan og öruggan hátt um hverfið og bæta þannig umferðaöryggi og umferðargæði.
Eigendum lóða í hverfinu verði gert kleift að endurnýja og bæta fasteignir sínar í sátt við umhverfið. Þess ber þó að gæta að hverfið er nánast fullbyggt, svo svigrúm til frekari uppbyggingar er mjög takmarkað.
Forsögn fyrir lambastaðahverfii
1.08 mb
Auglýsing um deiliskipulag á Seltjarnarnesi
Bæjarstjórn Seltjarnarness auglýsir hér með tillögu að deiliskipulagi Bakkahverfis á Seltjarnarnesi skv. 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 með síðari breytingum.
Svæðið sem deiliskipulagið á að gilda fyrir afmarkast af Skerjabraut, Nesvegi, bæjarmörkum að Reykjavík og sjó eins og sýnt er á deiliskipulagsuppdrætti. Svæðið er nefnt Lambastaðahverfi eftir bænum Lambastöðum enda margar lóðir hverfisins fengnar úr landi Lambastaða.
Tilllaga verður til sýnis á bæjarskrifstofum Austurströnd 2 og á Bókasafni Seltjarnarness við Eiðistorg frá og með mánudeginum 28. september til miðvikudagsins 28. október 2009.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar. Skriflegum athugasemdum, ef einhverjar eru, skal skilað á bæjarskrifstofu Seltjarnarness, Austurströnd 2, eigi síðar en 12. nóvember 2009. Hver sá sem ekki gerir athugasemd við tillögurnar fyrir tilskilinn frest telst samþykkur þeim.
Ólafur Melsted
Skipulagsstjóri Seltjarnarness
Auglýsing að deiliskipulagi: Lambastaðahverfii
158 kb.
Lambastaðahverfi: Tillaga að deilskipulagi
1,6 mb.
Lambastaðahverfi. Greinagerð og skilmálar
59,8 mb.
