Fara í efni

Postulínsbrúðusýning Rúnu Gísladóttur á bókasafninu

Rúna Gísladóttir opnar sýningu á handgerðum postulínsbrúðum í Bókasafni Seltjarnarness í tilefni af Menningarhátíð Seltjarnarness 2025.

Einstakar handgerðar postulínsbrúður Rúnu.

Á sýningunni verða brúður af ýmsum stærðum og gerðum. Rúna Gísladóttir hefur unnið postulínsbrúðurnar frá grunni bæði steypt þær í mótum, pússað, málað og gengið frá þeim. Auk þess hefur hún hannað og handunnið fatnað á hverja brúðu fyrir sig. Með því leitast hún við að skapa mismunandi persónur og fær jafnfram útrás fyrir nýjar hugmyndir. Garnið í nýjustu prjónaflíkunum hefur Rúna litað sjálf með jurtum.

Rúna hóf þessa brúðugerð 1996 eftir að hafa farið á námskeið og hefur búið til fjöldann allan af brúðum en í brúðusafninu hennar eru brúður af ýmsu tagi. Þó að á sýningunni séu aðallega handgerðar postulínsbrúður eru í safninu margar aðrar tegundir brúða. Flestar þeirra eru leikfangabrúður frá mismunandi tímum. Þær elstu rúmlega 100 ára.

Sýningin er sett upp í tilefni af Menningarhátíð Seltjarnarness 2025 og stendur út nóvember.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?