Fara í efni

Fjölmenni á opnu húsi og fjáröflunardegi í Valhúsaskóla

Fimmtudaginn 4. júní var opið hús og fjáröflunardagur í Valhúsaskóla frá kl. 15–17 þar sem sannkölluð Carnival-stemning ríkti. Fjöldi gesta lagði leið sína í skólann og naut dagsins með nemendum og starfsfólki.

Nemendur seldu eigin verk, boðið var upp á leiki, mat og fjölbreytta afþreyingu. Einnig fór fram uppboð á fótboltatreyjum atvinnumannanna, Orra Steins Óskarssonar og Benonýjar Breka Andréssonar. 

Á bókasafni skólans gátu gestir skoðað hugmyndir nemenda að endurbótum á skólalóðinni. Ágóði dagsins mun renna til endurbóta á skólalóðinni og betri aðstöðu fyrir nemendur.

Kærar þakkir til allra sem komu og studdu við verkefnið.

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?