Fara í efni

Heimsókn frá 6.bekk

Í dag, þriðjudag, fengum við nemendur í 6. bekk í heimsókn í Valhúsaskóla. Námsráðgjafar skólanna skipuleggja heimsóknina með það að markmiði að kynna nemendum skólann, svara spurningum þeirra og hjálpa þeim að verða öruggari og betur undirbúin fyrir flutninginn.

Nemendaráð Valhúsaskóla sagði frá starfi sínu og félagslífi skólans og nemendur fengu einnig upplýsingar um Selið, tækjamál og fleira sem tengist skólastarfinu.

Við hlökkum til að taka formlega á móti ykkur, verðandi 7. bekkingum, í haust! 

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?