Selið/Való sendi eitt lið til keppni að þessu sinni og það er afar ánægjulegt að segja frá því að lið Selsins/Való hlaut verðlaun fyrir bestu hönnunarmöppuna en það er annað árið í röð sem sá árangur næst.
Undanfarin þrjú ár hefur Való boðið upp á valfagið Stíl, þar sem nemendur fá tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum, undirbúa hönnunina og fá leiðsögn í gegnum allt ferlið.
Hjartanlega til hamingju með þennan glæsilega árangur kæru nemendur. Metnaðurinn, sköpunargleðin og vinnan sem þið hafið lagt í þetta í vetur er sannarlega til fyrirmyndar.
