Nemendur í 8. bekk fengu fræðslu um örugga netnotkun frá Sigurjóni hjá Heimili og skóla í dag en fræðslan markar upphaf Jafningjafræðslu verkefnisins í Valhúsaskóla.
Á næstu vikum vinna nemendur í hópum að því að greina hættur á netinu og búa til kynningar og fræðslumyndbönd um netnotkun, vellíðan- og réttindi á netinu. Verkefnið er árlegt þróunarverkefni í samstarfi við Heimili og skóla.
Við lok verkefnis verða fimm nemendaverkefni valin og munu þeir nemendur jafningjafræða nemendur á miðstigi um þetta mikilvæga efni.
