Fara í efni

Lærdómsrík fræðsluferð starfsfólks Valhúsaskóla

Starfsfólk Valhúsaskóla kom heim í gærmorgun eftir afar lærdómsríka og vel heppnaða ferð til New York. Í ferðinni heimsótti hópurinn tvo einkaskóla á Manhattan, Dalton og LREI, en báðir skólarnir teljast til svokallaðra progressive education skóla. Heimsóknirnar reyndust einstaklega áhugaverðar og fræðandi og gáfu starfsfólki dýrmæta innsýn í ólíkar nálganir í kennslu og námi.

Í skólunum er lögð rík áhersla á forvitni nemenda, nám byggt á spurningum og sjálfstæðri hugsun. Þá er samvinna, nemendamiðuð nálgun og lýðræðisleg menntun í forgrunni. Starfsfólk Valhúsaskóla fékk tækifæri til að fylgjast með kennslu, ræða við kennara og stjórnendur og skoða hvernig þessar áherslur birtast í daglegu skólastarfi.
Ferðin var bæði hvetjandi og gefandi og mun án efa nýtast vel í áframhaldandi þróun skólastarfs í Valhúsaskóla.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?