Allir nemendur í 8. bekk eiga mikið hrós skilið fyrir metnað, samvinnu og vel unnin verkefni. Sérstakar þakkir fá þeir nemendur sem voru valdir til að sinna sjálfri jafningjafræðslunni fyrir miðstigið. Í síðustu viku luku þau þeirri fræðslu með glæsibrag og í dag fengu þau afhent viðurkenningarskjöl og verðlaunuð með bakarísveislu fyrir frábært starf.
Við erum afar stolt af þessum duglegu, jákvæðu og ábyrgðarfullu nemendum.
.