Fréttatilkynning frá aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins
Vegna vonskuveðurs, sem spáð er á morgun, mælist aðgerðastjórn höfuðborgarsvæðisins eindregið til þess að fólk haldi sig heima á meðan veðrið gengur yfir. Appelsínugul viðvörun vegna veðurs er í gildi frá kl. 7-13 og um tíma má búast við mikilli ofankomu og afleitu skyggni. Veðrið verður orðið skaplegt strax eftir hádegi og gott er ef fólk frestar ferðum sínum fram að þeim tíma að minnsta kosti. Með þessu móti gefst líka miklu betra tækifæri til að ryðja snjó af vegum, en slíkt er afar erfitt ef margir bílar eru fastir í ófærð. Frekari upplýsingar varðandi færð og veður má nálgast á upplýsingasíðum Vegagerðarinnar og Veðurstofunnar.
Röskun verður á leik- og grunnskólastarfi á morgun. Leik- og grunnskólar eru opnir en ekki verður um hefðbundið starf að ræða á meðan á appelsínugulri viðvörun stendur. Hefðbundið leikskóla, grunnskóla og frístundastarf hefst eftir að viðvörun lýkur. https://www.shs.is/hvad-get-eg-gert/roskun-a-skolastarfi
Due to severe weather forecast for tomorrow, the Capital Area Emergency Management strongly advises people to stay home while the weather passes. An orange weather warning is in effect from 7:00-13:00, during which heavy snowfall and poor visibility are expected. The weather is expected to improve shortly after noon, and it is advisable for people to delay travel until at least that time. This will also provide a much better opportunity to clear snow from roads, as this is extremely difficult when many cars are stuck in adverse conditions. Further information regarding road conditions and weather can be found on the websites of the Icelandic Road and Coastal Administration and the Icelandic Meteorological Office.
Preschool and elementary school activities will be disrupted tomorrow. Preschools and elementary schools will be open, but normal operations will not take place while the orange alert is in effect. Normal preschool, elementary school, and after-school activities will resume after the alert ends.
Information can be found here: Röskun á skólastarfi | Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins
We kindly ask you to closely monitor messages tomorrow morning in case there are any changes to the situation.