Í dag fengu stúlkur í 9. bekk tækifæri til að taka þátt í hinum árlega viðburði Stelpur, stálp og tækni, sem haldinn er af Háskólinn í Reykjavík í samstarfi við Marel. Markmið viðburðarins er að kynna fjölbreytta möguleika innan tæknigeirans og hvetja stúlkur og stálp til að skoða nám og störf tengd tækni og nýsköpun.
Dagurinn hófst í Háskólanum í Reykjavík þar sem hópurinn sat tvo áhugaverða fyrirlestra. Annars vegar var fjallað um tengsl sálfræði og tækni og hins vegar um lögfræði og gervigreind. Fyrirlestrarnir gáfu nemendum m.a. innsýn í hvernig tæknin tengist ólíkum starfsgreinum.
Í hádeginu var boðið upp á Domino’s pizzu áður en haldið var í heimsókn í Hugverkastofuna. Þar fengu stelpurnar kynningu á starfsemi fyrirtækisins og helstu verkefnum þess. Einnig tóku þær þátt í skapandi verkefni þar sem þær hönnuðu eigið vörumerki og unnu með hugmyndir sínar á fjölbreyttan og skapandi hátt.
Á föstudaginn verður síðan komið að strákunum í 9.bekk þegar viðburðurinn Strákar, stálp og Háskólar verður haldinn í Háskólinn í Reykjavík.
