Dagurinn hófst á fræðandi fyrirlestrum þar sem nemendur fengu innsýn inn í atvinnulífið. Meðal annars hlýddu nemendur okkar á fyrirlestur frá starfsmanni hjá skrifstofu Reykjavíkurborgar (Stafræn Reykjavík) og í kjölfarið fengu þeir kynningu frá Landsbankanum.
Í hádeginu var boðið upp á Dominos pizzur og gos á meðan DJ Jónas Óli sá um tónlistina.
Í lok dags fengu nemendur svo kennslu í forritun og Minecraft hjá SKEMA. Nemendur skemmtu sér konunglega og fengu að spreyta sig á skapandi og tæknilegum verkefnum.
