Í dag fór fram upplestrarkeppni 7. bekkinga á bókasafni skólans. Alls tóku 12 nemendur þátt og fluttu bæði ljóð og bókmenntatexta af mikilli færni og innlifun.
Dóra og Anna Birna, fyrrverandi kennarar við skólann, voru heiðursdómarar og dæmdu keppnina ásamt Írenu.
Á meðan dómarar ræddu sín á milli um niðurstöður fengu allir nemendur veitingar í boði skólans.
Þátttakendur fengu bækur og páskaegg fyrir þátttökuna, auk þess sem sérstök verðlaun voru veitt fyrir 1.–3. sæti.

Nemendur eiga mikið hrós skilið fyrir frábæra frammistöðu, bæði þeir sem tóku þátt í keppninni og einnig samnemendur þeirra, sem fylgdust vel með og sýndu keppendum áhuga og stuðning.
Við erum stolt af nemendum okkar og þökkum þeim fyrir vel heppnaða og skemmtilega keppni.