Fara í efni

Einn, tveir og elda og hryllilegar bollakökur

Október flaug hjá í heimilisfræði stofunni enda nóg að gera við bakstur og eldamennsku.
Fyrsti hópurinn í sjötta bekk lauk lotunni með tveimur verkefnum. Annað var keppnin Einn, tveir og elda en í henni átti hver hópur að elda úr þremur hráefnum sem kennari valdi og máttu síðan velja fleiri til að töfra fram kræsingar. Hver hópur fékk líka eina þraut á meðan á eldamennsku stóð m.a. að tvista við lag í mínútu. Það var góð stemning í stofunni og eldamennskan gekk vel en gestadómari sá um stigagjöf ásamt kennara. Hitt verkefnið var lokakaffi fyrir umsjónarkennara þar sem við bökuðum spari bollakökur með smjörkremi og skrauti, helltum upp á kaffi og áttum saman huggulega morgunstund.
 
Hrekkjavakan átti síðan hug okkar allan frá miðjum október. Allir hópar fengu að skreyta (og eldri að baka) hryllilegar bollakökur með glassúr og ýmsu skrauti. Útkoman var litrík og skemmtileg og mögulega hafa einhverjar kökur náð að rata heim áður en þær hurfu ofan í svanga maga 😀
Úr ofninum síðustu vikur hafa líka komið ostaslaufur, skonsur og brauð svo fátt eitt sé nefnt. Síðustu daga má svo segja að kókoskúlu-færiband hafi verið í gangi í heimilisfræði stofunni og allir hópar hafa fengið að gera hinar sívinsælu kúlur!
Framundan er t.d. Oreo smákökugerð, fræðsla um íslenska jólamatinn og mexíkóskt þema hjá eldri bekkjunum. Svo förum við að komast í jólagír undir lok mánaðar og þá bætast við piparkökur!
 
Með hryllilegum baksturskveðjum úr heimilisfræðistofunni,
María


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?