Fara í efni

Fjölgreindaleikarnir

Í síðustu viku fóru fjölgreindarleikar Mýrarhúsaskóla fram. Leikarnir eru löngu orðnir hef hér í Mýrarhúsaskóla en 18 ár eru síðan fyrstu leikarnir fóru fram.
Það var mikið um að vera þegar Fjölgreindarleikar Mýrarhúsaskóla voru settir.
Það var mikið um að vera þegar Fjölgreindarleikar Mýrarhúsaskóla voru settir.

Fjölgreindarleikarnir gengu frábærlega. Nemendur í 6. bekk sýndu sanna leiðtogahæfileika. Ábyrgðarfull leiddu þau yngri börnin í skólanum í gegnum alls konar þrautir og leiki sem reyndu á mismunandi færni: Stærðfræði, málvísindi, íþróttir, rökhugsun, tónlist, textíl, list og tilfinningar. Fjölbreytileikinn fékk svo sannarlega að njóta sín.


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?