Fara í efni

Fúsi skoðar heiminn – eðlisfræðin vaknar til lífsins!

Við fengum skemmtilega heimsókn þegar Ragnar Björn Ragnarsson, fyrrverandi nemandi Mýrarhúsaskóla, kom og kynnti fyrir nemendum nýju myndabókina sína Fúsi skoðar heiminn.
Bókin segir frá Fúsa sem er á leið til ömmu sinnar en á ferðalaginu vekur ýmislegt í nærumhverfinu forvitni hans. Af hverju virka hlutir eins og þeir gera? Á leiðinni kynnist Fúsi meðal annars þyngdarkrafti, lyftikrafti, Doppler-áhrifum og núningi – flóknum hugtökum sem Ragnar Björn nær að færa yfir á skemmtilegt og aðgengilegt mál fyrir börn.
 
Ragnar Björn las úr bókinni af miklum tilþrifum og nemendur hlustuðu af athygli, tóku virkan þátt og höfðu greinilega mjög gaman af.
Með sögunni fylgja einnig einfaldar tilraunir sem börnin geta gert sjálf og hjálpa þeim að sjá og upplifa hugmyndirnar sem fjallað er um.
Markmið Ragnars Björns er einmitt að kveikja forvitni barna og áhuga þeirra á því hvernig heimurinn í kringum okkur virkar – og miðað við viðbrögðin í dag tókst það svo sannarlega!
 
Við þökkum Ragnari Birni kærlega fyrir frábæra og fræðandi heimsókn og óskum honum innilega til hamingju með bókina.
 
Fúsi Explores the World – Physics Comes to Life!
We had a delightful visit when Ragnar Björn Ragnarsson, a former pupil of Mýrarhúsaskóli, came and introduced his new picture book, Fúsi Explores the World, to the pupils.
 
The book tells the story of Fúsi, who is on his way to his grandmother's house, but along the way, various things in his surroundings spark his curiosity. Why do things work the way they do? On his journey, Fúsi learns about gravity, lift, the Doppler effect and friction, among other things – complex concepts that Ragnar Björn manages to present in a fun and accessible way for children.
 
Ragnar Björn read from the book with great enthusiasm, and the pupils listened attentively, participated actively and clearly had a lot of fun.
The story is also accompanied by simple experiments that the children can do themselves, helping them to see and experience the ideas discussed.
Ragnar Björn's goal is precisely to spark children's curiosity and interest in how the world around us works – and judging by the reaction today, he certainly succeeded!
 
We thank Ragnar Björn very much for a wonderful and educational visit and offer him our heartfelt congratulations on the book.
 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?