Fara í efni

Lummur og dísætar súkkulaðibitasmákökur með vinnufriði

Margt hefur á daga okkar drifið hér í heimilisfræði stofunni það sem af er september.
Fyrsti, annar og þriðji bekkur mótaði upphafsstafina sína og bakaði úr gerdeigi sem vakti lukku. Þá hafa nú flestir bekkir fengið að gera langþráðar kókoskúlur.
 
Krakkarnir í þriðja bekk bökuðu lummur sem við lærðum að væri mikið þolinmæðisverk, og gott að fá fullorðna með sér í lið við að ná réttum hita á helluna svo lumman hvorki brenni við né verði hrá! Kryddbrauð bökuðum við líka samkvæmt uppskrift ömmu. Nemendur bökuðu brauðið í hringlaga formum sem kom ljómandi vel út eins og sjá má á mynd.
 
Tebollur með súkkulaði og Trallakökur rötuðu líka á bökunarplötuna og fimmti bekkur gerði Focaccia sem þau síðan fylltu með grænmeti, skinku og sósu. Voru þau ánægð með afraksturinn og ættu flestir að hafa tekið með sér uppskriftina heim 🙂 Fimmti og sjötti bekkur bakaði líka pizzumuffins sem er sniðugt nesti eða millimál. Fimmti og sjötti bekkur lauk síðan síðustu viku á dísætum Subway-súkkulaðibitasmákökum.
 
Við höldum svo áfram að vinna í bókinni í öllum árgöngum. Þá verður ein vika á næstunni tileinkuð ákveðnu þema og eldri bekkirnir munu fá að spreyta sig á óvæntum verkefnum er tengjast bæði matargerð og heimilisstörfum.
 
Mig langar að enda þennan pistil á góðri möntru sem við ætlum að nota í stofunni okkar og höldum áfram að æfa okkur í henni. Hún hljóðar svo:
-Vinnufriður sé með yður -
 
Góðar og nýbakaðar stundir,
María, heimilisfræðikennari

              

               


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?