Í gær fengu nemendur í 3. og 4. bekk skemmtilega heimsókn frá rithöfundunum Yrsu Þöll Gylfadóttur og Gunnari Theodór Eggertssyni. Heimsóknin var hluti af verkefninu Skáld í skólum á vegum Rithöfundasambands Íslands.
Dagskráin bar yfirskriftina Kortleggjum bækur! og þar fóru höfundarnir með nemendur í spennandi ferðalag um heim bókmenntanna. Þau sýndu fjölbreytt kort úr barnabókum og fjölluðu um hvernig kort geta hjálpað rithöfundum að skapa nýja söguheima, allt frá stórum ævintýralöndum niður í litla bakgarða.
Heimsóknin var skemmtileg leið til að vekja áhuga nemenda á bókum, lestri og skapandi skrifum og minna á að ímyndunaraflið getur farið með okkur hvert sem er
