Fyrsta vikan í heimilisfræði er nú að baki og fengu allir að spreyta sig eftir aldri.
Fyrsta vikan í heimilisfræði er nú að baki og fengu allir að spreyta sig eftir aldri.
Fyrsti bekkur fékk leiðsögn um heimilisfræðistofuna og voru prúðir gestir á skyr-veitingastað þar sem þau fengu að velja sér skyr, ávexti og kókosmjöl í skál. Þau gengu síðan frá diskum og skeiðum í uppþvottavélina.
Annar bekkur byrjaði á að búa til bananabúst en í seinni tímanum settum við upp smá matarboð, lögðum á borð og smökkuðum lítil pizzubrauð.
Þriðji bekkur og fjórði bekkur gerðu líka búst og skyrskál og í seinni tímanum bakaði fjórði bekkur bollur en þriðji bekkur lærði að gera eggjabrauð.
Fimmti og sjötti gerði skyrskálar, fimmti bekkur bakaði síðan bollur og sjötti bekkur beyglur (sem reyndust mjög klístraðar í meðförum en góðar), sjötti bekkur endaði síðan á að baka hafraklatta fyrir helgina. (Vonandi verða nokkrir eftir fyrir fjölskylduna til að smakka).
Við fórum vel yfir þær reglur sem gilda í heimilisfræðistofunni og má hér nefna tvær mikilvægar sem eru að ganga vel frá eftir sig og vera þolinmóð og góð hvort við annað.
Ég lagði áherslu á við þau að samvinna og samvera væru lykilorðin hjá okkur, við ætlum að læra að vinna með öllum og njóta samverunnar í stofunni.
Við ætlum að vera dugleg að vinna í bókinni í vetur og m.a læra næringarfræði, kynna okkur matarmenningu annara landa og læra hvernig við getum nýtt matvæli. Svo ætlum við jú auðvitað að baka ýmislegt og elda og vera dugleg að smakka.
Ég hlakka til að vinna með krökkunum ykkar í vetur 🙂
Sælkerakveðjur,
María Ólafsdóttir, nýr heimilisfræðikennari í Mýró.







