Mýrarhúsaskóli tekur þátt í Svakalegu lestrarkeppninni í ár og hún hefst í dag og stendur til 6. október.
Í keppninni keppast grunnskólar landsins um það hver les mest. Allur lestur þessa daga er skráður.
Við ætlum að lesa, lesa og lesa meira!
Við viljum hvetja foreldra og fjölskyldur að taka þátt og lesa með börnunum heima, leyfa þeim að sjá ykkur lesa og lesa fyrir þau. Þannig erum við læsisfyrirmyndir fyrir krakkana og sýnum þeim að lestur sé skemmtilegur partur af daglegu lífi allra.