Fara í efni

Þemavikur 2. bekkjar um hafið

Undanfarnar 3 vikur hefur 2. bekkur unnið að skemmtilegu og fjölbreyttu þemaverkefni um hafið.
Nemendur hafa fræðst um lífið í og við sjóinn, lesið fræðitexta, unnið með nýjan orðaforða, andheiti, samsett orð ásamt því að skrifa, teikna og skapa. Nemendur völdu sér fiska til að fræðast nánar um, söfnuðu upplýsingum og útbjuggu kynningar sem þeir fluttu fyrir bekkjarfélaga sína. Mikill metnaður og gleði einkenndi vinnuna og nemendur stóðu sig með prýði. Hápunktur þemans var fjöruferð þar sem námið færðist út í náttúruna. Þar skoðuðu nemendur lífríki fjörunnar, kíktu undir steina og rannsökuðu það sem fyrir augu bar. Þemað um hafið hefur verið bæði lærdómsríkt og skemmtilegt og nemendur sýnt mikinn áhuga, forvitni og sköpunargleði.
 
 
 
   
 

   

 


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?