28.04.2026
Lærdómsrík fræðsluferð starfsfólks Valhúsaskóla
Starfsfólk Valhúsaskóla kom heim í gærmorgun eftir afar lærdómsríka og vel heppnaða ferð til New York.
Í ferðinni heimsótti hópurinn tvo einkaskóla á Manhattan, Dalton og LREI, en báðir skólarnir teljast til svokallaðra progressive education skóla. Heimsóknirnar reyndust einstaklega áhugaverðar og fræðandi og gáfu starfsfólki dýrmæta innsýn í ólíkar nálganir í kennslu og námi.