Fara í efni

Fréttasafn

Des Nóv Okt Sep Ágú Júl Jún Maí Apr Mar Feb Jan
Badminton mót á vordegi
05.06.2026

Badminton mót á vordegi

Í dag var haldið badmintonmót milli bekkja þar sen keppt var eftir „Around the World“ fyrirkomulagi. Í úrslitaleiknum áttust við 7-HI og 9-GP og fór svo að 9-GP sigraði mótið.
Fjölmenni á opnu húsi og fjáröflunardegi í Valhúsaskóla
05.06.2026

Fjölmenni á opnu húsi og fjáröflunardegi í Valhúsaskóla

Fimmtudaginn 4. júní var opið hús og fjáröflunardagur í Valhúsaskóla frá kl. 15–17 þar sem sannkölluð Carnival-stemning ríkti. Fjöldi gesta lagði leið sína í skólann og naut dagsins með nemendum og starfsfólki.
Strákar og stálp í Háskóla
22.05.2026

Strákar og stálp í Háskóla

Í dag fór fram viðburðurinn Strákar og stálp í háskóla, sem haldinn er af Háskólanum í Reykjavík í samstarfi við JBT Marel og Festi. Markmið dagsins var að kynna nemendum í 9. bekk fjölbreytta möguleika í háskólanámi sem og í atvinnulífi framtíðarinnar.
Stelpur, stálp og tækni
20.05.2026

Stelpur, stálp og tækni

Í dag fengu stúlkur í 9. bekk tækifæri til að taka þátt í hinum árlega viðburði Stelpur, stálp og tækni, sem haldinn er af Háskólinn í Reykjavík í samstarfi við Marel. Markmið viðburðarins er að kynna fjölbreytta möguleika innan tæknigeirans og hvetja stúlkur og stálp til að skoða nám og störf tengd tækni og nýsköpun. Dagurinn hófst í Háskólanum í Reykjavík þar sem hópurinn sat tvo áhugaverða fyrirlestra. Annars vegar var fjallað um tengsl sálfræði og tækni og hins vegar um lögfræði og gervigreind. Fyrirlestrarnir gáfu nemendum m.a. innsýn í hvernig tæknin tengist ólíkum starfsgreinum.
Nemendur í 8. bekk fræða miðstigið um netöryggi
13.05.2026

Nemendur í 8. bekk fræða miðstigið um netöryggi

Fyrr á árinu hófu allir nemendur í 8. bekk vinnu við jafningjafræðsluverkefni þar sem áhersla er lögð á netöryggi, réttindi og vellíðan á netinu. Verkefnið er þróunarverkefni sem skólinn hefur unnið að undanfarin ár í samstarfi við Heimili og skóla. Markmið verkefnisins er að nemendur í 8.bekk fræði aðra nemendur á jafningjagrundvelli um mikilvæga þætti nethegðunar og ábyrgra samskipta á netinu.
Heimsókn frá 6.bekk
12.05.2026

Heimsókn frá 6.bekk

Í dag, þriðjudag, fengum við nemendur í 6. bekk í heimsókn í Valhúsaskóla. Námsráðgjafar skólanna skipuleggja heimsóknina með það að markmiði að kynna nemendum skólann, svara spurningum þeirra og hjálpa þeim að verða öruggari og betur undirbúin fyrir flutninginn.
Styrkur frá Forriturum framtíðarinnar
07.05.2026

Styrkur frá Forriturum framtíðarinnar

Valhúsaskóli hlaut styrk frá Forriturum framtíðarinnar til kaupa á tækjabúnaði fyrir forritunar- og tæknikennslu.
Opið hús
07.05.2026

Opið hús

Við bjóðum ykkur velkomin á opið hús í Valhúsaskóla, fimmtudaginn 4. júní frá kl. 15–17. Nánari upplýsingar verða kynntar síðar
Lærdómsrík fræðsluferð starfsfólks Valhúsaskóla
28.04.2026

Lærdómsrík fræðsluferð starfsfólks Valhúsaskóla

Starfsfólk Valhúsaskóla kom heim í gærmorgun eftir afar lærdómsríka og vel heppnaða ferð til New York. Í ferðinni heimsótti hópurinn tvo einkaskóla á Manhattan, Dalton og LREI, en báðir skólarnir teljast til svokallaðra progressive education skóla. Heimsóknirnar reyndust einstaklega áhugaverðar og fræðandi og gáfu starfsfólki dýrmæta innsýn í ólíkar nálganir í kennslu og námi.
Námsval skólaárið 2026-2027
14.04.2026

Námsval skólaárið 2026-2027

Nú er komið að því að nemendur velji sér valgreinar fyrir næsta skólaár.
Gleðilega páska
27.03.2026

Gleðilega páska

Kennsla hefst að nýju samkvæmt stundatöflu þriðjudaginn 7. apríl. 
Röskun á skólastarfi
25.03.2026

Röskun á skólastarfi

Eftirfarandi upplýsingar koma frá aðgerðarstjórn höfuðborgarsvæðinu (english below).
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?