Fara í efni

Vinnuvernd

Í Mýrarhúsaskóla leggjum við áherslu á að skapa öruggt, heilsusamlegt og jákvætt starfsumhverfi þar sem vellíðan, öryggi og heilsa starfsfólks eru í fyrirrúmi. Við teljum að góður starfsandi, gagnkvæm virðing og góðar starfsaðstæður séu mikilvægar forsendur fyrir öflugu og farsælu skólastarfi.

Vinnuvernd er mikilvægur hluti af daglegu starfi skólans og felur í sér markvissar aðgerðir til að fyrirbyggja vinnuslys, vinnutengd veikindi og óhóflegt álag. Með reglulegu áhættumati, áætlun um heilsuvernd og forvarnir og virkri þátttöku starfsfólks vinnum við stöðugt að því að bæta vinnuumhverfið.

Markmið okkar er að Mýrarhúsaskóli sé vinnustaður þar sem starfsfólk upplifir öryggi, stuðning og starfsánægju og hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við lítum á vinnuvernd sem sameiginlegt verkefni stjórnenda og starfsfólks þar sem samvinna, ábyrgð og virðing eru höfð að leiðarljósi.

Samkvæmt lögum um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum ber atvinnurekanda að gera skriflega áætlun um öryggi og heilbrigði á vinnustað. Áætlunin skal byggja á áhættumati þar sem greindir eru þeir þættir í vinnuumhverfinu sem geta haft áhrif á öryggi, heilsu og vellíðan starfsfólks. Hún skal jafnframt fela í sér áætlun um heilsuvernd og forvarnir þar sem tilgreindar eru nauðsynlegar úrbætur, ábyrgð á framkvæmd þeirra og tímasetningar.

Síðast uppfært 22. október 2026
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?