Fara í efni

Netöryggi

Við í Valhúsaskóla leggjum mikla áherslu á ábyrga og örugga netnotkun nemenda og starfsfólks. Þetta nær til persónuverndar, siðferðis og gagnrýninnar nálgunar á netnotkun. 

Í síbreytilegu tæknisamfélagi hefur samskiptamiðlum fjölgað og eru þeir nú ómissandi í daglegu starfi og námi. Þó tæknin bjóði upp á marga kosti og vaxtarmöguleika geta skuggahliðar hennar haft andlegar, líkamlegar og félagslegar afleiðingar. Með því að kenna börnum að nýta snjalltæki og nútímatækni í námi er hægt að leiðbeina þeim og styðja við heilbrigða notkun.

Virknikorti er ætlað að leiðbeina foreldrum og börnum þeirra í samræðum um ákjósanleg viðmið um félagslega virkni og heilbrigt líferni. Stuttar leiðbeiningar eru á kortinu og þar eru einnig virkir tenglar sem vísa beint á hagnýtt efni á heilsuvera.is til stuðnings einstökum efnisatriðum.

Síðast uppfært 30. október 2025
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?