Fara í efni

Skólasamfélagið

Gott samstarf foreldra, nemenda, starfsfólks og stjórnenda er grunnurinn að góðu skólasamfélagi. Í Valhúsaskóla er starfrækt öflugt nemendaráð og foreldrafélag sem og sérstakt skólaráð. Skólanefnd bæjarins fer svo með málefni grunnskóla samkvæmt lögum þar um.

Foreldrafélag

Meginmarkmið foreldrasamstarfsins í skólanum er að efla samstarf heimila og skóla þannig að sem flestir foreldrar séu virkir í mótun skólasamfélagsins og hafi jákvæð viðhorf til skólans og til samstarfs foreldra. Öflugt samstarf heimila og skóla leiðir af sér öflugra skólastarf, bætta líðan nemenda og betri námsárangur.

Við hvetjum alla foreldra til að taka virkan þátt í skólastarfinu og fylgjast vel með starfi foreldrafélags.

Formaður foreldrafélagsins skólaárið 2025-2026 er Linda Jóhannsdóttir

 

Skólaráð

Við grunnskóla skal starfa skólaráð sem er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Meginhlutverk skólaráðs er að vera vettvangur fyrir alla fulltrúa skólasamfélagsins til að eiga samráð um málefni skólans.

Skólanefnd

Skólanefnd fer með málefni grunnskóla, sbr. lög um grunnskóla. Skólanefnd Seltjarnarnesbæjar er skipuð fimm aðalmönnum kjörnum af bæjarstjórn og jafnmörgum til vara. Kjörtímabil nefndarinnar er hið sama og bæjarstjórnar.

Nemendafélag

Samkvæmt lögum um grunnskóla skal starfa nemendafélag við grunnskóla og er öflugt nemendafélag í skólanum. Nemendafélagið vinnur m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og sitja fulltrúar þess í skólaráði.

Nemendaráð Valhúsaskóla 2026-2026 er skipað 7 fulltrúum úr 8.-10. bekk:

Frosti Hrannarsson, formaður

Katla Róbertsdóttir

Guðmundur Þorgeirsson

Egill Stefánsson

Kæja Kristín Fulbright-DeJong

Egill Stefánsson

Róbert Einvarður Jónsson

Þyrí Úlfsdóttir

 

Síðast uppfært 25. september 2026
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?