Fara í efni

Tómstundastyrkir

Með árlegum tómstundastyrk er stuðlað að því að öll börn og ungmenni á Seltjarnarnesi geti tekið þátt í uppbyggilegu frístundastarfi, óháð efnahag eða félagslegum aðstæðum. Um er að ræða árlega upphæð til greiðslu félagsgjalda í íþrótta-, æskulýðs- og tómstundastarfi

Umsókn um tómstundastyrk er á mínum síðum

 

Íþrótta- og tómstundaráð Seltjarnarness og bæjarstjórn hvetur börn, unglinga og forráðamenn þeirra til þess að nýta sér tómstundstyrk sem nemur nú 75.000 krónum á ári á hvern iðkenda/þátttakanda á aldrinum 5-18 árs.

Þessari ráðstöfun er sérstaklega beint að barnafjölskyldum á Seltjarnarnesi með það að leiðarljósi að auka þátttöku barna og unglinga í íþrótta, tómstunda- og æskulýðsstarfi. Enda gildi þess að taka þátt í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir börn og unglinga ótvírætt hvað varðar líkamlega, andlega og félagslega heilsu.

 

Tilgangur tómstundastyrkja

Meginmarkmið er að öllum börnum og ungmennum á Seltjarnarnesi verði auðveldað að sinna uppbyggilegu tómstundastarfi með sérstökum tómstundastyrkjum. Með tómstundastyrknum má greiða að hluta fyrir íþrótta-, lista- og tómstundaiðkun sem stundaðar eru á Seltjarnarnesi eða í nágrannasveitarfélögum. Innleiðing tómstundastyrkjanna er aukinn stuðningur við fjölskyldur, eykur valfrelsi barna og ungmenna, stuðlar að jöfnuði og gerir fleirum fært að stunda fleiri en eina tómstundaiðkun.

Hverning starf er styrkhæft

Skipulagt starf sem stundað er undir leiðsögn þjálfara/leiðbeinanda og nær yfir eina önn eða að lágmarki 10 vikur.

Þetta á við um:

- Allt íþróttastarf sem stundað er á vegum viðurkenndra íþróttafélaga.
- Dans í dansskólum.
- Nám í tónlistarskólum.
- Listgreinar ýmiskonar.
- Skátastarf.
- Skipulagðar æfingar í viðurkenndum líkamsræktarstöðvum og að iðkandi hafi náð 15 ára aldri.
- Hvers kyns tungumálaskóli eða námskeið, að fenginni umsögn fræðslustjóra

Úthlunarreglur um tómstundastyrki

Reglur um tómstundastyrki voru samþykktar á fundi Íþrótta- og tómstundaráðs Seltjarnarness þann 31. október 2008 og endurskoðaðar 1. maí 2014 og 19. september 2018.

- Að styrkþegi hafi lögheimili á Seltjarnarnesi.
- Að styrkþegi sé á aldrinum 5 – 18 ára miðað við fæðingarár..
- Að um skipulagt starf/kennslu/þjálfun sé að ræða í a.m.k. 10 vikur og 70% ástundun..
- Staðfesting á greiðslu/kvittun fylgi umsókn vegna tómstundastyrkja. Á greiðslukvittun komi fram: nafn og kennitala félags/námskeiðishaldara, dagsetning greiðslu, tegund iðkunar, tímabil iðkunar, nafn og kennitala iðkanda.
- Styrkur getur aldrei orðið hærri en sem nemur æfingagjaldi/þátttökugjaldi iðkunar.
- Árlegur hámarksstyrkur er kr. 75.000.-
- Styrkurinn fyrnist um áramót. Ekki er hægt að sækja um ónýttan styrk frá fyrra ári.

Framkvæmd greiðslu

Umsókn um tómstundastyrk fer fram í gegnum mínar síður. Greiðslukvittun þarf að fylgja umsókn. Styrkumsóknir eru afgreiddar innan 2ja vikna.

Athugið að sækja þarf um tómstundastyrk árlega.

Síðast uppfært 13. febrúar 2023
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?