Fara í efni

Reglur um greiðslur til dagforeldra, vegna daggæslu barna í heimahúsi

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir að greiða mánaðarlega í ellefu mánuði á ári fjárhæð vegna dvalar barna með lögheimili á Seltjarnarnesi. Bæjarstjórn ákveður fjárhæð hverju sinni að fenginni tillögu skólanefndar.

Skilyrði fyrir greiðslu eru:

  • Að barnið eigi lögheimili á Seltjarnarnesi.
  • Að viðkomandi dagforeldri hafi starfsleyfi samkvæmt reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu barna í heimahúsum.
  • Að barn hafi náð 12 mánaða aldri.
  • Að barnið sé slysatryggt.
  • Að foreldri sæki um niðurgreiðslur til Seltjarnarnesbæjar, á þar til gerðu eyðublaði.

Greiðsla Seltjarnarnesbæjar til dagforeldra vegna barna með lögheimili á Seltjarnarnesi frá og með 1. ágúst 2017:

 Ef hjón og sambúðarfólk Ef einstæðir foreldrar og/eða báðir foreldrar eru í námi Ef annað foreldri er í námi
Fyrir 6 stunda vistun kr. 49.500 kr. 57.120 kr. 54.060
Fyrir 6,5 stunda vistun kr. 53.625 kr. 61.880 kr. 58.565
Fyrir 7 stunda vistun kr. 57.750 kr. 66.640 kr. 63.070
Fyrir 7,5 stunda vistun kr. 61.875 kr. 72.400 kr. 67.575
Fyrir 8 stunda vistun kr. 66.000 kr. 76.160 kr. 72.080
  • Greitt er fyrir hálfan og heilan mánuð og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
  • Leggja skal fram fjölskylduvottorð í tilviki einstæðra foreldra og námsvottorð skóla í tilviki námsmanna.
  • Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá systkinaafslátt fyrir leikskólabarnið/börnin og eða barn/börn í Skjóli/Frístund.
  • Kaupandi þjónustu nýtur þess afsláttar sem kemur honum best samkvæmt uppfylltum skilyrðum.
  • Afsláttur leggst ekki við afslátt.

Gildir frá 1. janúar 2021. 

Síðast uppfært 29. nóvember 2022
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?