Fara í efni

Reglur um þátttöku Seltjarnarnesbæjar í kostnaði aldraðra við sjúkraþjálfun

Seltjarnarnesbær endurgreiðir ellilífeyrisþegum, 67 ára og eldri, kostnaðarhlutdeild þeirra í sjúkraþjálfun.

Endurgreidd eru allt að 10 skipti á ári og er miðað við almanaksárið.

Endurgreiddar eru 2.783.- kr. fyrir hvert skipti og miðast þar við greiðslur sjúkratryggðra fyrir sjúkraþjálfun frá Sjúkratryggingum Íslands. Endurgreiðslur geta þó aldrei numið hærri fjárhæð en hlutdeild notanda er eins og hún kemur fram á framvísuðum reikningi.

Endurgreiðslur fara þannig fram að viðkomandi ellilífeyrisþegi greiðir sinn hlut sjálfur hjá viðkomandi sjúkraþjálfara en framvísar síðan greiddum reikningi á Bæjarskrifstofum Seltjarnarness, Austurströnd 2 og fyllir þar út beiðni um endurgreiðslu. Greiðsla eru lögð inn á reikning viðkomandi innan þriggja vikna.

Eingöngu er endurgreitt vegna meðferðar hjá löggiltum sjúkraþjálfurum.

Reglur þessar taka gildi 1. janúar 2010, uppfærðar 1. janúar 2024

Pdf skjal til útprentunar

Síðast uppfært 10. janúar 2024
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?