Fara í efni

Ólöf Nordal - Bollasteinn

Útilistaverk Ólafar Nordal (fædd 1961) er gert úr heilum grágrýtissteini sem í er sorfin hringlaga fótbaðs- eða vaðlaug.

Ár: 2004-2005
Efni: Grágrýti
Stærð: 80 x 200 x 200 cm.
Staðsetning: Kisuklappir
Pantað í september 2004 af Menningarnefnd Seltjarnarness, sett upp við Kisuklappir í júní 2005

 

Laugin er lýst upp með mildu rafljósi að innanverðu og í hana rennur stöðugt óblandað, forkælt jarðhitavatn úr borholum Seltjarnarness, en það hefur einstaka samsetningu og jafnvel lækningamátt.

Ólöf er fjölhæfur listamaður sem hefur unnið með margs konar efni. Viðfangsefni sín sækir hún gjarnan í þjóðlega arfleifð og menningarleg minni sem hún setur í nútímalegt samhengi. Náttúran og tengsl okkar við landið eru henni einnig hugleikin.

Í Bollasteini vísar hún til fornrar laugarhefðar Íslendinga um leið og hún hvetur fólk til að upplifa hita og kraft jarðar með því að fara úr sokkum og skóm og verða eitt með náttúrunni í fjöruborðinu. Þannig verður það þátttakendur í eins konar gjörningi „á mörkum byggðar og náttúru, lands og sjávar, himins og jarðar”, segir listakonan. „Með heita fætur streymir blóðið um kroppinn, líkamleg og andleg skynjun vex, næmi fyrir umhverfinu vaknar og tengsl við náttúruöflin myndast.”

Texti eftir Ásdísi Ólafsdóttur, listfræðing.

Hljóðleiðsögn um listaverkið "Bollasteinn". Sólveig Pálsdóttir, rithöfundur les.

Ýtið á "play" takkann fyrir neðan til að spila hljóðleiðsögn.

Síðast uppfært 18. maí 2022
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?