Fara í efni

Reglur um kjör íþróttamanns Seltjarnarness

  1. Íþrótta- og tómstundaráð Seltjarnarness gengst fyrir útnefningu á íþróttamanni og íþróttakonu Seltjarnarness í janúarmánuði ár hvert.
  2. Íþróttamaður og íþróttakona Seltjarnarness fá farandbikar sem skal vera í vörslu þeirra í eitt ár ásamt eignabikar.
  3. Einnig fá íþróttamaður og íþróttakona Seltjarnarness peningastyrk að upphæð kr. 100.000.- sem er ætlaður sem hvatning til enn betri afreka í framtíðinni.
  4. ÍTS óskar eftir tilnefningum frá íþróttafélögum á Seltjarnarnesi svo og sérsamböndum innan ÍSÍ.
  5. Aðeins skal tilnefna þá íþróttamenn sem eiga lögheimili á Seltjarnarnesi þegar kjörið fer fram.
  6. Útnefndur er einn úr hópi kvenna og einn úr hópi karla sem bera skulu titilinn í eitt ár.
  7. Val á Íþróttamanni og íþróttakonu Seltjarnarness skal taka mið af árangri en einnig hvort viðkomandi sé jákvæð og virðingarverð fyrirmynd í hátterni, líferni og líklegur til þess að hefja íþróttir og íþróttaiðkun til vegs og virðingar.
  8. Viðurkenningar eru veittar Seltirningum sem keppt hafa í unglingalandsliðum.
  9. Viðkurkenningar eru veittar ungu og efnilegu íþróttafólki fyrir ástundun og árangur.
  10. Viðurkenningar eru veittar Seltirningi(um) sem hefur/hafa unnið framúrskarandi vel að íþrótta- og eða æskulýðsmálum.
  11. Afhending viðurkenninganna skal fara fram með viðhöfn og er það í höndum formanns ÍTS í hvert sinn að stjórna dagskránni.
  12. Fastir boðsgestir eru: Bæjarstjórn, stjórnir deilda Gróttu og þjálfarar, stjórn sunddeildar KR, stjórn golfklúbbs Ness og aðstandendur íþróttafólks sem hlýtur viðurkenningu.

 

Íþrótta- og tómstundaráð Seltjarnarnes

Síðast uppfært 12. desember 2022
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?