Fara í efni

Menningarstarf

Yfirfara texta /finna myndir MBÓ/fínpússa útlit

Blómstrandi menningarstarf er á Seltjarnarnesi. Menningarstofnanir bæjarins gegna veigamiklu hlutverki og fjölbreyttir menningarviðburðir eru haldnir yfir árið. Þar ber einna hæst Menningarhátíð Seltjarness að hausti og val um Bæjarlistamann Seltjarnarness við upphaf árs.

Gróttudagur fyrir alla fjölskylduna hefur verið haldinn í nokkur ár að vori auk þess sem Jónsmessuganga um Nesið og bæjarhátíð Seltirninga hafa verið árlegir viðburðir. (MÍNUS COVID)

Þá á bærinn mikið safn listaverka sem Ásdís Ólafsdóttir, listfræðingur, hefur skrifað um. Lesa má sér til um listaverk í eigu Seltjarnarnesbæjar hér (linka á síðu)

Tónlistarlíf

Á Seltjarnarnesi eru starfandi tveir kórar er halda úti metnaðarfullu kórstarfi, Selkórinn og Kammerkór kirkjunnar. Hafa kórarnir komið víða fram bæði hér á landi og erlendis.

Innan Tónlistarskóla Seltjarnarness er starfrækt lúðrasveit og ... sem leika við ýmsar athafnir og á viðburðum á vegum bæjarins.

Söfn bæjarins:

Öflugt félag- og menningarlíf auk fræðslustarfs fer fram á Bókasafni Seltjarnarness linka við síðu

Þjóðminjasafnið sér um rekstur Nesstofu við Seltjörn- linka við síðu.

Menningarmál bæjarins falla undir þjónustu og samskiptasvið, sviðsstjóri þess er María Björk Óskarsdóttir.

ÞETTA ER GAMLI TEXTINN

Menningarnefnd Seltjarnarness úthlutar styrkjum til menningarstarfs en auk þess stendur menningarnefnd fyrir kaupum á listaverkum. Bærinn á mikið safn verka sem kynnt eru á heimasíðu bæjarins undir heitinu Listaverk í eigu Seltjarnarnesbæjar”, þar sem Ásdís Ólafsdóttir listfræðingur hefur skrifað um viðkomandi verk.

Menningarnefndin stendur fyrir menningarhátíð annað hvert ár, í fyrsta sinn árið 2003 undir nafninu „Bjartar sumarnætur á Seltjarnarnesi”.

Þá stendur nefndin fyrir árvissri Jónsmessugöngu um Nesið sem nýtur stöðugt meiri vinsælda og kemur fólk víða að til að taka þátt. Göngunni lýkur með hressingu, varðeldi, harmónikkuspili og söng.

Bæjarlistamaður Seltjarnarness er valinn árlega við hátíðlega athöfn. Hér fyrir neðan má sjá yfirlit yfir bæjarlistamenn síðast liðin ár.

Yfirlit yfir bæjarlistamenn undanfarinna ára.

Kórar

Á Seltjarnarnesi eru starfandi tveir kórar, Selkórinn og Kammerkór kirkjunnar. Verkefnaskrár beggja þessara kóra eru einstaklega metnaðarfullar og hafa þeir hvor í sínu lagi komið víða fram bæði hér á landi og erlendis.

Söfn

Bókasafn Seltjarnarness
Hlutverk Bókasafns Seltjarnarness er að vera vettvangur fyrir félags- og menningarlíf bæjarbúa þar sem almenningur getur notið menningar, bókmennta og lista, og jafnframt að vera rafræn upplýsingastofnun með nýjustu margmiðlunartækni sem völ er á. Safnið starfar samkvæmt lögum um almenningsbókasöfn.

Auk útlána á bókum og tímaritum lánar safnið út hljóðbækur, myndbönd, mynddiska, tónlist og tungumálanámskeið. Í safninu er almenn upplýsingaþjónusta og margvísleg starfsemi fyrir börn, m.a. sögustundir.

Safnið á gott safn listaverka og stendur bókasafnið fyrir margvíslegum sýningum. Undanfarið hafa verið málverkasýningar, kynning á ýmsum málefnum og einnig sýning á handavinnu eldri borgara á Seltjarnarnesi. Nú eru í athugun hugmyndir um flutning Náttúrugripasafns Seltjarnarness yfir í hluta af húsnæði Bókasafnsins á Eiðistorgi.

Nesstofa

Þjóðminjasafnið sér um rekstur Nesstofu. Nesstofa er fyrsti íslenski landlæknisbústaðurinn, hlaðin úr tilhöggnu grjóti á árunum 1761-1763.

 

Síðast uppfært 15. nóvember 2021
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?