Fara í efni

Reglur Æskulýðs- og íþróttaráðs Seltjarnarness fyrir úthlutun ferðastyrkja til einstaklinga innan landsliða ÍSÍ vegna æfinga- og keppnisferða til útlanda

Markmið styrkjanna er að koma til móts við þann kostnað sem fellur á þá einstaklinga 13 ára og eldri sem taka þátt í landsliðsferðum hvort sem það eru keppnis- eða æfingaferðir til útlanda á vegum sérsambanda. ÍTS áskilur sér rétt á að endurmeta aldur í hverju tilfelli fyrir sig.

Styrkhæfir eru einstaklingar sem hafa verið valdir í landslið starfræktum innan vébanda ÍSÍ, eiga lögheimili á Seltjarnarnesi eða stunda íþróttina með liði innan Seltjarnarness.

Styrkurinn er að hámarki kr. 30.000.

Umsókn skal berast frá viðkomandi sérsambandi. Sækja skal um styrk áður en ferð er farin. Umsókn skal fylgja afrekaskrá, heiti móts, allar kostnaðartölur, hvert ferðinni er heitið, tilgangur og dagsetningar. Umsóknum skal skilað til framkvæmdastjóra íþrótta-, tómstunda og æskulýðssviðs á skrifstofu hans eða í rafpósti.

Sérsamböndum er heimilt að sækja um þrjár ferðir á ári fyrir hvern einstakling. Meta skal sérstaklega óskir um styrki umfram það

Allar styrkbeiðnir sem sendar eru til ÍTS eru teknar til umfjöllunar á fundum ÍTS, sem metur hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar hverju sinni.

Úthlutun styrkja miðaðst við fjárframlög ÍTS.

Samþykkt á fundi ÍTS þann 10. desember 2015.

Síðast uppfært 12. desember 2022
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?