Fara í efni

Útboð í götu- og stígalýsingu

Seltjarnarnesbær auglýsir opið útboð á EES svæðinu og óskar eftir tilboðum í LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu á Seltjarnarnesi. Skilafrestur tilboða er til 30. apríl 2024.

Seltjarnarnesbær óskar eftir tilboðum í  „LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu“

 

Tilboðið felst í að útvega 724 LED lampa fyrir götu- og stígalýsingu í eldri hverfi í Seltjarnarnesbæ ásamt og með í ný hverfi sem verið er að reisa. Svæðið sem lamparnir eru ætlaðir í samanstendur af húsagötum, opnum svæðum og stígum. Gerðar eru kröfur til þess að bjóðandi bjóði lampa sem uppfylla útlitskröfur auk tæknilegra og ljóstæknilegra eiginleika og komi vel út í lífferilskostnaðargreiningu, LCC.

Samningur nær til tveggja ára. Frávikstilboð verða ekki leyfð.

 

Útboðsgögn verða afhent í tölvupósti í gegnum ráðgjafa verkkaupa, gudjon@liska.is frá og með 25. mars 2024 og verður hægt að nálgast gögn til og með 22. apríl 2024.

 

Tilboðum ásamt umbeðnum gögnum skal skila rafrænt í tölvupósti til gudjon@liska.is. Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Bjóðandi ber ábyrgð á að tilboð berist á réttum tíma og bjóðendur eru hvattir til að hefja tímanlega vinnu við að skila þeim inn.

 

Skilafrestur tilboða er til kl. 10:00 þriðjudaginn 30. apríl 2024

 

Opnun tilboða fer fram rafrænt að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Við opnun tilboða verða lesin upp nöfn bjóðenda og heildarlífsferilskostnaðarverð af tilboðseyðublaði.

 

Seltjarnarnesbær


Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?