Fara í efni

Bæjarráð

21. mars 2019

Haldinn í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Austurströnd 2, fimmtudaginn 21. mars, 2019, og hófst hann kl. 08:15

Fundinn sátu: Magnús Örn Guðmundsson, formaður, Sigrún Edda Jónsdóttir aðalmaður, Guðmundur Ari Sigurjónsson, aðalmaður.

Ennfremur sat fundinn Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri og Gunnar Lúðvíksson fjármálastjóri, sem ritaði fundargerð í tölvu

  1. Ársreikningur Seltjarnarnesbæjar 2018.

    Guðný Guðmundsdóttir, löggiltur endurskoðandi frá KPMG, mætti á fund bæjarráðs. Guðný Guðmundsdóttir gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2018, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður. Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Seltjarnarnesbæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 27. mars og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 10. apríl 2019.

Fundi slitið 9:45

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?