Fara í efni

Bæjarráð

06. apríl 2016

Haldinn í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Austurströnd 2,

Miðvikudaginn 6. apríl og hófst hann kl. 15:30

Fundinn sátu: Sigrún Edda Jónsdóttir formaður, Bjarni Torfi Álfþórsson aðalmaður, Guðmundur Ari Sigurjónsson, aðalmaður og Árni Einarsson áheyrnarfulltrúi.

Ennfremur sat fundinn Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri og Gunnar Lúðvíksson fjármálastjóri, sem ritaði fundargerð í tölvu.

Magnús Örn Guðmundsson bæjarfulltrúi sat einnig fundinn sem áheyrnarfulltrúi.

Fyrir var tekið:

  1. Ársreikningur Seltjarnarnesbæjar 2015.

    Auðunn Guðjónsson, löggiltur endurskoðandi frá KPMG mætti á fund bæjarráðs.

    Auðunn Guðjónsson gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2015, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.

    Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Seltjarnarnesbæjar 2015 samkvæmt 3. mgr. 61. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

    Ársreikningur er undirritaður og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 13. apríl og síðari umræða 11. maí 2016.

Fleira ekki tekið fyrir.

Fundi slitið kl. 16:45

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?