Fara í efni

Bæjarstjórn

960. fundur 22. febrúar 2023

Miðvikudaginn 22. febrúar 2023 kl. 17:00 kom bæjarstjórn Seltjarnarness saman til fundar í fundarsal sínum að Austurströnd 2, Seltjarnarnesi.

Fundinn sátu: Þór Sigurgeirsson (ÞS), Ragnhildur Jónsdóttir (RJ), Magnús Örn Guðmundsson (MÖG), Svana Helen Björnsdóttir (SHB), Guðmundur Ari Sigurjónsson (GAS), Sigurþóra Bergsdóttir (SB) og Bjarni Torfi Álfþórsson (BTÁ).

Fundargerð ritaði: Gunnar Lúðvíksson.

Fundurinn er sendur út samtímis á netinu og vistaður á heimasíðu bæjarins.

Ragnhildur Jónsdóttir setti fund og stjórnaði.

Gengið var til dagskrár og fyrir tekið:

1. Fundargerð 139. fundar Bæjarráðs.
Fundargerðin lögð fram.

Eftirfarandi liðir í fundargerð Bæjarráðs nr. 139 voru bornir upp til staðfestingar.

1. 2023020047 - Hönnunarsamningur Seltjarnarnesbæjar og Andrúms arkitekta lagður fram til samþykktar.

Bæjarráð samþykir fyrirliggjandi hönnunarsamning með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar. Jafnframt er Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri, kt. 070467-8369 veitt full heimild til undirritunar samningsins.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

2. 2021120137 - Samstarfssamningur Seltjarnarnesbæjar og Ás styrktarfélags lagður fram til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir samstarfssamning Seltjarnarnesbæjar og Ás styrktarfélags með fyrirvara um samþykki bæjarstjórnar og teknu tilliti til ábendinga sem komu fram á fundinum. Jafnframt er Þór Sigurgeirsson, bæjarstjóri, kt. 070467-8369 veitt full heimild til undirritunar samningsins.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

Til máls tóku: ÞS, GAS, BTÁ, MÖG, SB, RJ

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina í heild sinni sem er í 3 töluliðum.

2. Fundargerð 136. fundar Skipulags- og umferðarnefndar.
Fundargerðin lögð fram.

Eftirfarandi liðir í fundargerð Skipulags- og umferðarnefndar nr. 136 voru bornir upp til staðfestingar:

1. 2023010197 - Húsnæðisáætlun Seltjarnarnesbæjar 2023
Lögð fram til kynningar húsnæðisáætlun Seltjarnarnesbæjar 2023.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir Húsnæðisáætlun Seltjarnarnesbæjar 2023 og vísar til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

2. 2023020035 - Deiliskipulag Suðurstrandar og Hrólfsskálamels - Skólabraut 1
Lögð fram drög að breytingu á deiliskipulagi Suðurstrandar og Hrólfsskálamels, dagsett 6. febrúar 2023, í breytingunni fellst að gerður er nýr byggingareitur fyrir færanlegar kennslustofur og nýtingarhlutfall aukið.

Skipulags-og umferðarnefnd samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Suðurstrandar og Hrólfsskálamels skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagsslaga nr. 123/2010. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

3. 2022110119 - Nesvegur 103-105 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram umsókn Guðna Valbergs fyrir hönd Sunnu Guðnadóttur, dagsett 12. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Lambastaðhverfis vegna Nesvegar 103-105. Í umsókninni felst ósk um að hækka nýtingarhlutfall á lóðinni úr 0,3 í 0,4 en að byggingarreitur haldist óbreyttur.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir tillöguna. Fallið er frá grenndarkynningu þar sem ekki eru aðrir taldir eiga hagsmuna að gæta en Seltjarnarnesbær og samlóðarhafi sem gefið hefur undirritað samþykki á kynningargögn. Nefndin felur skipulagsfulltrúa að auglýsa breytinguna í B-deild stjórnartíðinda og senda Skipulagsstofnun til varðveislu í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010. Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða

4. 2022120200 - Umsagnarbeiðni vegna gistingar - Lindarbraut 13

Lögð fram frekari gögn varðandi umsagnarbeiðni frá Sýslumanni á höfuðborgarsvæðinu vegna rekstrarleyfis fyrir gistiheimili í flokki II-C við Lindarbraut 13.

Í gildandi aðalskipulagi Seltjarnarness er ekki fjallað sérstaklega um gististarfsemi. Í greinargerð aðalskipulags segir í kafla 3.1. um íbúðabyggð;
„Gert er ráð fyrir að í íbúðarhverfum geti verið atvinnustarfsemi svo fremi að hún valdi óverulegum óþægindum, nánar tiltekið innan eftirfarandi marka:

Starfsemin fari fram innan hefðbundins dagvinnutíma.

    • Starfsemi hvers rekstraraðila valdi ekki ónæði, t.d. vegna umferðar, lyktar eða hávaða.
    • Bílastæðanotkun gangi ekki verulega á afnot íbúa í nálægum húsum af sameiginlegum bílastæðum.

Óheimilt er á íbúðarsvæðum að reka áfengisveitingastaði, sbr. flokk II og III. skv. 4. gr. laga nr. 85/2007.“

Landnotkun er oft skilgreind nánar í deiliskipulagi. Í deiliskipulagi Vestursvæðis að Lindarbraut er ekki nánari skilgreining að öðru leyti en því að svæðið er skilgreint sem íbúðabyggð (ÍB-7) í aðalskipulagi.

Umsóknin var kynnt íbúum Lindarbrautar 11, 15, 15a, 14, 16 og 18 og Nesbala 21, 23 og 25 einnig var óskað eftir frekari gögnum frá umsækjanda um afgreiðslutíma gististaðar og fjölda áætlaðra bílastæða fyrir starfsemina. Engar athugasemdir bárust frá íbúum og umsækjandi hefur gert grein fyrir afgreiðslutíma gesta milli 11:00 og 14:00 daglega og bílastæði sé fyrir gesti innan lóðar.

Með vísan til þess, þ.e. ef komur og brottfarir eru almennt á dagvinnutíma, þ.e. að starfsemin hafi ekki í för með sér aukna umferð eða ónæði utan dagvinnutíma, telur meirihluti nefndarinnar ekki forsendur til að leggjast gegn umsókninni að svo komnu enda eigi móttaka ferðamanna og brottfarir sér aðallega stað á dagvinnutíma. Framangreint er algjör forsenda þess að meirihluti nefndarinnar leggst ekki gegn umsókninni. Breytist móttöku- eða brottfarartími ferðamanna miðað við þetta almennt eða verði verulegt ónæði af starfseminni bresta forsendur fyrir jákvæðri afstöðu meirihluta nefndarinnar til starfseminnar. Áskilur nefndin sér rétt til að bregðast við á viðeigandi hátt m.a. með tilkynningu þar um til sýslumanns sem væntanlega tekur þá til skoðunar hvort forsendur fyrir leyfisveitingunni séu brostnar.

Vísað til staðfestingar í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar.

Bæjarstjórn samþykkir með fjórum atkvæðum og þrír fulltrúar Samfylkingar á móti.

Bókun:
Bæjarfulltrúar Samfylkingar og óháðra styðja ekki breytingar á íbúðarhúsnæði í gistiheimili. Þetta er önnur leyfisumsóknin sem meirihlutinn leggur til að veitt verði ótímabundin heimild til rekstur gistiheimilis án þess að heimild sé fyrir því í aðalskipulagi. Tillaga Sjálfstæðismanna um að veita slíka heimild í aðalskipulagi hefur ekki verið samþykkt eða farið í gegnum lögbundið samráðsferli.

Til máls tóku: SHB, BTÁ, SB, GAS, ÞS, MÖG, RJ

Bæjarstjórn samþykkir fundargerðina í heild sinni sem eru 11 liðir.

 

3. Fundargerð 3. fundar notendaráðs fatlaðs fólks.
Fundargerðin lögð fram.

4. Fundargerð 410. fundar Samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.
Fundargerðin lögð fram.

5. Fundargerð 551. fundar stjórnar SSH.
Fundargerðin lögð fram.

Tillögur og erindi:

6. a) Lögð var fram umsagnarbeiðni – tækifærisvínveitingaleyfi, dagana 11/3 og 12/3 frá kl. 13 – 17 vegna tónleikahalds í Gróttu.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða.

 

Fundi slitið kl. 17:49.

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?