Fara í efni

Skipulags- og umferðarnefnd

14. febrúar 2017

57. fundur Skipulags- og umferðanefndar, þriðjudaginn 14. febrúar,  2017, kl. 08:00 að Austurströnd 2 á Seltjarnarnesi.

Mætt: Bjarni Torfi Álfþórsson, Anna Margrét Hauksdóttir, Ragnhildur Ingólfsdóttir, Ásgeir Guðmundur Bjarnason,  Stefán Bergmann,  Kristinn H. Guðbjartsson, byggingarfulltrúi. Páll Gunnlaugsson, ráðgjafi, Kristján Hilmir Baldursson og Óliver Thorlasius fulltrúar frá ungmennaráði..

Fundarstjóri: Bjarni Torfi Álfþórsson.  Fundarritari: Kristinn H. Guðbjartsson

Skipulagsmál samkvæmt Skipulagslögum nr. 123/2010

  1. Mál.nr. 2016040139
    Heiti máls: Kolbeinssstaðamýri, deiliskipulagsbreyting vegna Suðurmýrar 10.
    Málsaðili: Verkstjórn ehf.
    Lýsing: Drög að svörum við athugasemdum lögð fram.
    Afgreiðsla: Svör samþykkt og send til bæjarstjórnar til staðfestingar.
  1. Mál.nr. 2016030088
    Heiti máls: Bollagarðar/Hofgarðar breytt deiliskipulag vegna Bollagarða 73-75.
    Málsaðili: Kristinn E Hrafnsson
    Lýsing: Drög að svörum við athugasemdum ásamt áliti umferðarsérfræðings lögð fram.
    Afgreiðsla: Svör samþykkt og send til bæjarstjórnar til staðfestingar. Ragnhildur Ingólfsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.

    Byggingamál samkvæmt Mannvirkjalögum nr. 160/2010.
  1. Mál.nr. 2017020067
    Heiti máls: Suðurmýri 10 - fjölbýlishús á tveim hæðum.
    Málsaðili: Verkstjórn ehf.
    Lýsing: Umsókn um byggja fjórbýlishús skv. framlögðum uppdráttum.
    Afgreiðsla: Frestað, byggingarfulltrúa falið að leita álits brunaeftirlits.
  1. Mál.nr. 2017020028
    Heiti máls: Nesbali 35 fyrirspurn v/hæðar, nýtingahlutfall og gróðurhúss
    Málsaðili: Jens Pétur Hjaltested
    Lýsing:  Fyrispurn í 4 liðum um nýbyggingu á Nesbala 35.
    Afgreiðsla:  Frestað, byggingarfulltrúa falið að afla gagna fyrir næsta fund.

    Umferðarmál:

 

  1. Mál.nr. 2017020105
    Heiti máls: Melabraut - Kennisnið
    Málsaðili: Þjónustumiðstöð
    Lýsing:  Óskað eftir umsögn um kennisnið.
    Afgreiðsla: Nefndin samþykkir einstefnu með bílastæðum og gangstéttum beggja vegna. Stefnt skal að því að gangstéttar verði allt að tveir metrar á breidd.

    Önnur mál
  2. Mál.nr. 2016020117
    Heiti málsHofgarðar 22 - girðing á lóðamörkum, kvörtun
    Málsaðili: Magnús Eyjólfsson
    Lýsing:  Girðing milli lóða ekki tekin niður og moldarfok.
    Afgreiðsla:  Byggingarfulltrúa falið að skoða málið


Fundargerð lesin og samþykkt.

Fleira ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09.14.

Bjarni Torfi Álfþórsson sign, Anna Margrét Hauksdóttir sign, Ragnhildur Ingólfsdóttir sign, Ásgeir Guðmundur Bjarnason sign,  Stefán Bergmann sign,  

Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?