Fara í efni

Skipulags- og umferðarnefnd

17. febrúar 2022

122. fundur skipulags- og umferðarnefndar

17. febrúar 2022 kl. 08:04-09:07

Í fundarsal bæjarstjórnar Seltjarnarnesbæjar, Austurströnd 2 Seltjarnarnesi og í gegnum fjarfundarbúnað.

Nefndarmenn:

Ragnhildur Jónsdóttir, formaður

Ingimar Sigurðsson, varaformaður

Guðrún Brynja Vilhjálmsdóttir, aðalmaður

Garðar Gíslason, varamaður

Karen María Jónsdóttir, aðalmaður


Starfsmenn:

Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri

Fundargerð ritaði: Brynjar Þór Jónasson, sviðsstjóri


Dagskrá:

 

1. 2019050407 - Deiliskipulag Bakkahverfis – breyting vegna Melabrautar 20 og Valhúsahæðar 19

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar samþykkti á fundi sínum þann 24. mars 2021 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi Bakkahverfis vegna lóðanna Melabraut 20 og Valhúsabraut 19 í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr.123/2010. Athugasemdafresti lauk 7. júní sl. og skipulags- og umferðarnefnd synjaði tillögunni m.t.t. athugasemda sbr. afgreiðslu 2. fundarliðar í máli nr. 2019050407 á 115. fundar skipulags- og umferðarnefndar, sem haldinn var 10. júní 2021. Innsendar athugasemdir lagðar fram að nýju ásamt niðurstöðu Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála vegna kæru umsækjanda, þar sem málunum er vísað frá nefndinni þar sem þau hafi ekki hlotið afgreiðslu í bæjarstjórn.

Frestað, vísað til umsagnar hjá skipulagsfulltrúa og lögmanni Seltjarnarnesbæjar.


2. 2021120345 - Tillaga að breyttu deiliskipulagi - Melabraut 3
Lögð fram umsókn Össurs Hafþórssonar fyrir hönd Mjalls ehf., dagsett 21. desember, 2021, ásamt uppdrætti af tillögu að breyttu deiliskipulagi, dagsettur 14. febrúar 2022, þar sem sótt er um heimild til að breyta deiliskipulagi Bakkahverfis vegna fyrirhugaðrar stækkunar á Melabraut 3. Breytingin felur í sér stækkun byggingarreits og hækkunar nýtingarhlutfalls úr 0,43 í 0,50.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að auglýsa breytingu á deiliskipulagi Bakkahverfis skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.


3. 2022020082 - Kirkjubraut 19 - Umsókn um byggingu sólstofu yfir svalir
Lögð fram umsókn Guðmundar Gunnlaugssonar, dagsett 8. febrúar 2022, um byggingu sólstofu yfir svalir að Kirkjubraut 19. Með umsókninni fylgir undirritað samþykki annarra eigenda Kirkjubrautar 19.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir erindið, samræmist deiliskipulagi Valhúsahæðar og aðliggjandi útivistarsvæða.


4. 2022020085 - Umsókn um stöðuleyfi
Lögð fram stöðuleyfisumsókn Þorsteins Guðjónssonar fyrir hönd Golfklúbbs Ness, dagsett 8. febrúar 2022, fyrir 20 feta gámi aftan við Austurströnd 5.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir, með vísan í samþykki lóðarhafa Austurstrandar 5, að veita Golfklúbbi Ness stöðuleyfi, frá 1. mars 2022 til 28. febrúar 2023, fyrir 20 feta gámi aftan við og innan lóðarmarka Austurstrandar 5.


5. 2022020078 - Umsókn um stöðuleyfi
Lögð fram stöðuleyfisumsókn Sigurþóru Steinunnar Bergsdóttur, dagsett 8. febrúar 2022, fyrir 20 feta gámi á lóð Elliða dælustöðvar Seltjarnarnesbæjar bakvið Nesveg 123.

Skipulags- og umferðarnefnd samþykkir að veita Sigurþóru Steinunni Bergsdóttur stöðuleyfi frá 11. febrúar til 27. maí 2022 fyrir 20 feta gámi á lóð Seltjarnarnesbæjar við dælustöð Elliða.

Fundi slitið 09:07
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?