Fara í efni

Mat á skólastarfi

Mat á skólastarfi byggir á reglugerð um mat og eftirlit í grunnskólum og upplýsingaskyldu sveitarstjórna um skólahald.

Um ytra mat segir:

Markmið mats og eftirlits með gæðum starfs í skólum er samkvæmt 17. grein laga um leikskóla nr. 90/2008, 35. grein laga um grunnskóla nr. 91/2008 og 40. grein laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 fyrst og fremst að veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks skóla, viðtökuskóla, foreldra og nemenda. Einnig að tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár leik, grunn- og framhaldsskóla. Ytra mat á að auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum og tryggja að réttindi barna/nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þau/þeir eiga rétt á samkvæmt lögum 
Með ytra mati er unnið að öllum þessum markmiðum og lögð sérstök áhersla á að efla og styðja innra mat og gæðastjórnun skóla, styðja skóla, stjórnendur og kennara í umbótum á eigin starfi, hvetja kennara til að vinna saman að því að bæta eigin starfshætti og vera skólum hvati til frekari skólaþróunar.
Ytra mat felur í sér hvoru tveggja eftirlit með og stuðning við skólastarf. Meginstef ytra mats er að það sé leiðbeinandi, framfara- og umbótamiðað og stuðli að betra skólastarfi. Leiðarljósið er ávallt nemandinn, réttur hans og þarfir.

Í innra mati er hugað að þáttum eins og skólastjórnun, faglegri þróun starfsfólks, nýtingu bjarga, skipulagningu kennslu, virkri þátttöku nemenda og starfsfólks í starfi skólans, gæðaþróun o.s.frv. Sjálfsmatsáætlun Mýrarhúsaskóla er sett upp út frá fyrrnefndum viðmiðum. Hugmyndin er að styðjast fyrst og fremst við formlegt mat, þar sem traustra upplýsinga er aflað á kerfisbundinn hátt til að meta gildi og gæði þjónustunnar með það í huga að það nýtist þeim sem starfa í skólanum og leiði til þess að þjónustan verði efld og styrkt. Skólinn nýtir m.a. kannanir sem gerðar eru af utanaðkomandi aðilum til að greina stöðu og þarfir innan skólans og er það mikilvæg viðbót við innra matið. Niðurstöður innra mats liggja til grundvallar umbótaáætlun skólans.

Sjálfsmatsáætlun Mýrarhúsaskóla er gerð til þriggja ára í senn. Skólinn leggur áherslu á nemandann og þarfir hans. Með hliðsjón af því verður lagt mat á eftirfarandi þætti:

  1. Hvort skólinn hafi skýra sýn og styrka stjórn?
  2. Hvort kennsluhættir og mat mæti ólíkum þörfum nemenda og bæti árangur þeirra?
  3. Hvort nemendum líði vel í skólanum og hvort þeir hafi áhuga á náminu?
  4. Hvort það sé góður starfsandi í skólanum að mati starfsmanna og áhugi á skólaþróun?
  5. Hvort foreldrar séu ánægðir með samstarfið á milli heimila og skóla?

Út frá niðurstöðum hvers árs er gerð umbótaáætlun. Eftirfarandi þættir þurfa að koma fram í umbótaáætlun fyrir hvern matsþátt:

  • Umbótaþáttur.
  • Markmið með umbótum.
  • Aðgerðir til umbóta.
  • Tímaáætlun.
  • Ábyrgðaraðili/ar.
  • Endurmat, hvenær og hvernig.
  • Viðmið.

Matið lagar ekkert eitt og sér heldur það sem gert er í kjölfarið því er lögð áhersla á að gera matið skýrt og aðgengilegt og birta sjálfsmatsáætlun, umbótaáætlun svo og allar niðurstöður á vefsíðu skólans.

Síðast uppfært 28. október 2025
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?