Fara í efni

Gjaldskrár Seltjarnarnesbæjar

Hér má nálgast allar gjaldskrár og álagningarreglur fyrir Seltjarnarnesbæ, flokkað í fjóra yfirflokka; útsvar og þjónusta, umhverfi og skipulag, skóli og frístund, gjaldskrár stofnana. 

Smellið á fyrirsagnir til að skoða viðkomandi gjaldskrá.

Útsvar og þjónusta

Álagning fasteignagjalda og útsvars fyrir árið 2024

Álagningaseðill fasteignagjalda er birtur rafrænt undir mínar síður á heimasíðunni og á island.is.  

Eftirfarandi álagningarreglur vegna ársins 2024 voru samþykktar í bæjarstjórn:

Álagning útsvars 

Útsvarsprósenta árið 2024 er 14,54%

Fasteignagjöld:

Gjöld Íbúðarhúsnæði Atvinnuhúsnæði
Fasteignaskattur 0,166% af fasteignamati 1,154% af fasteignamati
Lóðaleiga 0,40% af fasteignamati lóðar 1,75% af fasteignamati lóðar
Vatnsgjald 0,0855% af fasteignamati* 0,0855% af fasteignamati*
Sorp- og urðunargjald kr. 75.000 pr. íbúð/tunnu kr. 75.000 pr. matseiningu
Fráveitugjald 0,1425% af fasteignamati 0,1425% af fasteignamati

*Aukavatnsskattur leggst á stórnotendur skv. mæli kr. 44,50,- pr m3

Gjalddagar fasteignagjalda 2024

  • Gjalddagar eru samtals tíu talsins
  • 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl, 15. maí, 15. júní, 15. júlí, 15. ágúst, 15. september og 15. október
  • Eindagar eru 15. dags næsta mánaðar eftir gjalddaga.

Lækkun/niðurfelling fasteignaskatts og holræsagjalds/fráveitugjald til elli- og örorkulífeyrisþega skv. samþykkt þar um verður:

Afsláttur er hlutfallslegur og miðast við tekjur síðastliðins árs samkvæmt skattframtali. Forsendur eru því tekjuviðmið einstaklinga annars vegar og hjóna og fólks í skráðri sambúð hins vegar.
Afsláttur % 2024 - Einstaklingar
100% 0 6.046.443
75% 6.046.444 6.180.325
50% 6.180.326 6.314.209
25% 6.314.210 6.449.298
Afsláttur % 2024 - Hjón/fólk í skráðri sambúð
100% 0 7.725.407
75% 7.725.408 8.263.351
50% 8.263.352 8.801.295
25% 8.801.296 9.338.033
  • Notuð er heimild til þess að lækka fráveitugjald hjá tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum.
  • Afsláttur af fráveitugjaldi er reiknaður út og meðhöndlaður með sama hætti og afsláttur af fasteignaskatti, skv ofanskráðu.
  • Ekki þarf að sækja um lækkunina. Gerður verður vélrænn samanburður tekna samkvæmt skattframtali 2023 við afsláttarviðmiðun Seltjarnarnesbæjar. Nú verða afslættir dregnir frá strax við álagningu gjaldanna. (Ath. að fjármagnstekjur falla undir tekjur)

Skráð afnot fasteignar í fasteignaskrá ræður skattflokki.

Vinsamlegast athugið að breytingar á skráðri notkun fasteignar er háð byggingarleyfi Skipulags- og byggingarfulltrúa Seltjarnarnesbæjar. Ef afnotum fasteignar, sem metin er sem ein heild, er á þann veg háttað að greiða ber fasteignaskatt af henni samkvæmt fleiri en einum gjaldflokki, t.d. ef íbúðarhúsnæði er að hluta til notað fyrir ferðaþjónustu, þar á meðal heimagistingu, ákveður byggingarfulltrúi hlutfallslega skiptingu milli gjaldflokka.

  • A-skattflokkur 0,166% af fasteignamati
    Íbúðir og íbúðarhús ásamt lóðarréttindum, erfðafestulönd í dreifbýli og jarðeignir, útihús og mannvirki á bújörðum sem tengd eru landbúnaði, hesthús, öll hlunnindi og sumarbústaðir ásamt lóðarréttindum.
  • B-skattflokkur 1,32% af fasteignarmati
    Sjúkrastofnanir samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu, skólar, heimavistir, leikskólar, íþróttahús og bókasöfn.

  • C-skattflokkur 1,154 % af fasteignarmati
    Allar aðrar fasteignir, svo sem iðnaðar-, skrifstofu-, og verslunarhúsnæði, fiskeldismannvirki, veiðihús og mannvirki sem nýtt eru fyrir ferðaþjónustu, þar á meðal heimagisting.
    Álagning fasteignagjalda og útsvars fyrir árið 2024 staðfest í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 13. desember 2023.
    Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023
Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu hjá Seltjarnarnesbæ

Gildir frá 1. janúar 2024

Félagsleg heimaþjónusta Gjald pr. klst.
Almennt gjald 2.654 kr.
Elli- og örorkulífeyrisþegar:  
- Einstaklingar með tekjur undir 450.000 kr. 1.207 kr.
- Einstaklingar með tekjur umfram 450.000 kr.  2.654 kr.
- Hjón/sambýlisfólk með tekjur undir 600.000 kr. 1.207 kr.
- Hjón/sambýlisfólk með tekjur umfram 600.000 kr. 2.654 kr.
Undanþegnir gjaldi eru þeir sem einungis hafa lífeyristekjur frá TR
eða aðrar tekjur sem samsvara þeirri fjárhæð
0 kr.

Gjaldskrá fyrir félagslega heimaþjónustu:

1. gr.

Fyrir félagslega heimaþjónustu skal greiða gjald sem nemur 2.654.- kr. á klukkustund.

Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða gjald sem nemur 1.207. - kr. á klukkustund.

Elli- og örorkulífeyrisþegar með mánaðartekjur/bætur yfir 450.000.- kr hjá einhleypum og 600.000.- kr. hjá hjónum/sambýlisfólki á mánuði greiða 2.654.- kr. á klukkustund.

Gjaldskrá skal taka mið af breytingum launakostnaðar í upphafi hvers árs.

2. gr.

Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir sem einungis hafa lífeyristekjur frá Tryggingastofnun ríkisins eða aðrar tekjur sem samsvara þeirri fjárhæð.

Þeir notendur heimaþjónustu sem hafa tekjur umfram tekjur frá T.R. eða samsvarandi fjárhæð, greiða aldrei hærri upphæð fyrir þjónustu en sem nemur 50% af umframtekjum.

Ekki er greitt fyrir kvöld og helgarþjónustu

3. gr.

Fjölskyldunefnd er heimilt að gefa eftir hluta greiðslu fyrir veitta félagslega heimaþjónustu eða fella greiðslu alveg niður. Skal þá tekið tillit til efnahags og annarra aðstæðna. Starfsmaður skal gefa skriflega umsögn um slík erindi.

4. gr.

Gjaldskrá þessi er sett samkvæmt lögum nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga.

Gjaldskráin tekur gildi 16. maí 2007.

  • Leiðrétt í janúar 2008 miðað við bætur T.R. og 4% hækkun taxta.
  • Leiðrétt í desember 2009 miðað við bætur T.R. og launabreytingar.
  • Leiðrétt í desember 2012 m.v. launabreytingar. (tekur mið af launum starfsmanna heimaþjónustu)
  • Leiðrétt gjaldskrá tekur gildi 1. janúar. 2019
  • Gjaldskrá hækkar þann 1. janúar 2024 skv. samþykkt í bæjarstjórn 28. desember 2023
Gjaldskrá vegna félagsstarfs, kaffi og meðlætis og þvottaþjónustu

Gildir frá 1. janúar 2024

Þjónusta Verð
Þvottavél 330 kr
Kaffi og meðlæti 650 kr
Ristað brauð 250 kr
Námskeið í félagsstarfi aldraðra (mánaðargjald) 3.500 kr
Þátttökugjald í spilum 300 kr.
Söngstund 500 kr.

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Gjaldskrá fyrir kattahald á Seltjarnarnesi

1. gr.

Eigendur katta á Seltjarnarnesi skulu greiða bæjarsjóði skráningargjald samkvæmt gjaldskrá þessari, sem ætluð er til að standa undir kostnaði við framkvæmd samþykktar um kattahald á Seltjarnarnesi.

2. gr.

Við umsókn um skráningu kattar skal innheimta gjald að upphæð kr. 3.847.

3. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samþykkt var í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 15. desember 2014 með vísan í samþykkt um kattahald á Seltjarnarnesi nr. 184/2011, staðfestist hér með samkvæmt 5. mgr. 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2015.

Seltjarnarnes 16 desember 2014.
Ásgerður Halldórsdóttir, bæjarstjóri.

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Gjaldskrá fyrir útprentun gagna á bæjarskrifstofu

Viðskiptavinir Seltjarnarnesbæjar skulu greiða fyrir útprentun/ljósritun þeirra gagna sem þeir óska eftir hverju sinni svo sem hér greinir.

Útprentun gagna: Verð:
Stærð A0 770 kr.
Stærð A1 385 kr.
Stærð A2 275 kr.
Stærð A3 sv/hv 90 kr.
Stærð A3 lit 220 kr.
Stærð A4 sv/hv 65 kr.
Stærð A4 lit 165 kr.

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Gjaldskrá um sorphirðu í Seltjarnarnesbæ

1. gr.

Bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar er heimilt að leggja á sérstakt sorphirðugjald samkvæmt 10 gr. samþykktar nr. 95/1999 um sorphirðu og hreinsun opinna svæða á Seltjarnarnesi.

2. gr.

Sorphirðugjald skal lagt á allar íbúðir sem metnar eru í fasteignamati. Leggja skal sorphirðugjald á aukaíbúðir í húsum sem metnar eru í fasteignamati sem óskiptar eignir.

Sorphirðugjaldi er ætlað að standa undir kostnaði við sorphirðu, sorpeyðingu og urðun sorps, ásamt kostnaðarhlutdeild við rekstur endurvinnslustöðva.

3. gr.

Sorp- og urðunargjald skal vera 75.000 kr. pr. íbúð/tunnu fyrir íbúðarhúsnæði.

Sorp- og urðunargjald skal vera 75.100 kr. pr. matseiningu fyrir atvinnuhúsnæði.

4. gr.

Sorphirðugjald greiðist til Seltjarnarnesbæjar og skulu gjalddagar þess vera hinir sömu og gjald­dagar fasteignagjalda.

Dráttarvextir reiknast frá gjalddaga séu gjöldin ekki greidd á eindaga auk áfallins innheimtu­kostnaðar.

Sorphirðugjald skal tryggt með lögveði í viðkomandi fasteign í tvö ár frá gjalddaga.

5. gr.

Í þeim tilvikum sem sorphirða fer fram á grundvelli sérstakrar þjónustubeiðni skal innheimta sorphirðugjald fyrir sannanlegum kostnaði samkvæmt fyrirliggjandi reikningi.

Sé sorphirða sérstaklega flókin og kostnaðarsöm er heimilt að leggja á aukagjald fyrir sannanlegum kostnaði samkvæmt fyrirliggjandi reikningi.

6. gr.

Gjaldskrá þessi er sett og staðfest samkvæmt 59. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og meng­unar­varnir, með síðari breytingum, og öðlast gildi við birtingu. Jafnframt fellur úr gildi gjald­skrá um sorpgjald í Seltjarnarneskaupstað nr. 1303/2012.

Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, 28. desember 2023.

Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 5. janúar 2024

Slóð á nýjustu breytingar í Stjórnartíðindum

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Umhverfi og skipulag

Gatnagerðargjaldskrá

Janúar - júní 2024

Verðgrunnur fyrir gatnagerðargjald í desember 2023: kr. 286.509 pr. m2

Hundraðshluti byggingarkostnaðar ákvarðast eftir hústegund sem hér segir:
Tegund húsnæðis
% Verð 
Einbýlishús með eða án tvíbýlisaðstöðu 15% kr. 42.976 pr. m2
Parhús, tvíbýlishús 15% kr. 42.976 pr. m2
Raðhús, keðjuhús 15% kr. 42.976 pr. m2
Fjölbýlishús 15% kr. 42.976 pr. m2
Verslunar-, þjónustuhúsnæði o.fl. 15% kr. 42.976 pr. m2
Iðnaðarhúsnæði 15% kr. 42.976 pr. m2
Bílakjallarar 3,75% kr. 10.744 pr. m2

Framangreindar fjárhæðir taka breytingum tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí ár hvert í samræmi við breytingu á byggingarkostnaði vísitöluhúss.

Samþykkt um gatnagerðargjald á deiliskipulögðum svæðum í Seltjarnarnesbæ

Gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Seltjarnarnesbæ
 
 

Sé munur á texta á heimasíðu gildir birt PDF skjal Stjórnartíðinda.

Gjaldskrá vegna stöðvunarbrota í Seltjarnarnesbæ

Brot: Gjald:
Stöðubrotsgjald - stöðvað undir bannmerki, stöðvað á gangstétt, of nærri gangbraut eða við aðrar nánari tilteknar aðstæður sbr. 110. gr. umferðarlaga nr. 77/2019 10.000 kr.
- 14 dögum eftir álagningu 15.000 kr.
- 28 dögum eftir álagningu 20.000 kr.
Lagt í bílastæði fyrir hreyfihamlaða 20.000 kr.
- 14 dögum eftir álagningu 30.000 kr.
- 28 dögum eftir álagningu 40.000 kr.

 

Gjaldskrá fyrir leyfisveitingar og þjónustu byggingafulltrúa Seltjarnarnesbæjar

Gjaldskrá nr. 517/2018 fyrir leyfisveitingar og þjónustu byggingafulltrúa Seltjarnarnesbæjar 

  BVT 186,9 Janúar 2024
Byggingarleyfisgjald:  

 

Fast gjald vegna móttöku umsókna kr.

15.756

Fyrir hvern rúmmetra í nýbyggingu eða viðbyggingu að hámarki 50.000 m³ kr/m3

159

Við endurnýjun byggingarleyfa skal greiða lágmarksgjald. kr.

14.274

Yfirferð séruppdrátta (burðarþols-, lagna- og séruppdrátta aðalhönnuða)    
Einbýlis-, par-, rað- og fjölbýlishús allt að 6 íbúðir kr.

119.561

Fjölbýlishús 6 íbúðir og fleiri kr. 231.687
Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús allt að 2.000 m³ brúttó kr.

178.282

Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús
2000 m3 og stærri.
kr. 220.373
Aðrar minni byggingar, s,s, viðbygg., bílgeymsla., anddyri, sólstofa.o.fl . kr.

41.155

Úttektir    
Almenn úttekt kr.

9.756

Lokaúttekt kr.

28.961

Einbýlis-, par- og raðhús á einni hæð. (10 útt. + lokaútt.) kr.

126.514

Einbýlis-, par- og raðhús á tveimur hæðum (12 útt. + lokaútt) kr.

146.023

Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús
allt að 2000 m3 brúttó.
kr.

172.547

Af öðru húsnæði, þ.m.t. atvinnuhúsnæði og gripahús
2000 m3 og stærri.
kr.

234.124

Fjölbýlishús, gjald , pr. matshluta. kr.

214.618

Aðrar minni byggingar, lágmark 3 úttektir +1 lokaúttekt

kr.

48.777

Fokheldisvottorð m. úttekt kr.

23.474

Stöðuúttektarvottorð (Ófullgert húsnæði tekið í notkun) kr.

28.961

Mælingar    
Útsetning (1 fín útsetning og 1 eftirmæling). kr.

167.060

Húsaleiguúttektir - gjald pr. fermetra vegna íbúðarhúsnæðis    
Að hámarki kr. 14.125,00. fyrir íbúðarhúsnæði. kr. /m2

57

Gjald pr. fermetra vegna atvinnuhúsnæði kr. /m2

31

Veitingarhús    
Úttekt vegna rekstrarleyfis kr.

23.474

Annað    
Meistaraskipti kr 14.147
Byggingarstjóraskipti kr 19.140
Gjald fyrir hvert útkall byggingarfulltrúaþar sem verkið er ekki úttektarhæft. kr.

11.583

Stöðuleyfi fyrir gáma, hjólhýsi, ferðabíla, sumarhús o.fl. kr 19.140
Byggingarfulltrúa er heimilt í sérstökum tilfellum að innheimta gjald fyrir aðra þjónustu eða útköll, s.s. vettvangskönnun o.fl., enda hafi verið stofnað til sannanlegs kostnaðar vegna tilviksins kr. 14.937
 
Uppfært janúar 2024, birt með fyrirvara um innsláttarvillur, uppreikning.
Gjaldskrár fyrir skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis

Kostnaður vegna aðalskipulags

Aðalskipulagsbreytingar BVT 180 Janúar 2024
Afgreiðslugjald kr. 15.811
Breyting á skipulagsuppdrætti sbr. 1.mgr. 36. gr. kr. 216.359
Umsýslu- og auglýsingakostnaður sbr. 1. mgr. 36. gr. kr. 199.715
Umsýslu- og auglýsingakostnaður sbr. 2. mgr. 36. gr. kr. 99.858

Kostnaður vegna deiliskipulags

Nýtt deiliskipulag:

BVT
180
Janúar
2024
Nýtt deiliskipulag, sbr. 2. mgr. 38. gr. skv. reikingi 1    
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 38. gr. kr. 199.715
     

Verulegar breytingar á deiliskipulagi:

BVT
180
Janúar
2024
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 1. mgr. 43. gr. skv. reikningi1    
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 1. mgr. 43. gr. kr. 199.715
     

Óverulegar breytingar á deiliskipulagi:

BVT
180
Janúar
2024
Breyting á deiliskipulagsuppdrætti, sbr. 2. mgr. 43.gr. skv. reikningi1    
Umsýslu- og auglýsingakostnaður, sbr. 2. mgr. 43. gr. kr. 99.858

Kostnaður vegna grenndarkynningar

Grenndarkynning BVT 180 Janúar 2024
Umsýslu- og auglýsingakostnaður sbr. 44. gr. kr. 49.929

Kostnaður vegna framkvæmdaleyfis

Framkvæmdaleyfi BVT 180 Janúar 2024
Afgreiðslugjald kr. 15.811
Framkvæmdaleyfi - framkvæmdir skv. 1. og 2. viðauka laga um mat á umhverfisáhrifum. kr. 183.072
Framkvæmdaleyfi - aðrar framkvæmdir kr. 108.179

1 Vinna samkvæmt reikningi skal byggja á áætlun skipulagsstjóra um umfang verkefnisins sem umsóknaraðili samþykkir. Reikningur verður síðan gerður í samræmi við raunverulegan kostnað en getur ekki verið hærri en fjárhæð samkvæmt samþykktri áætlun.

Uppfært janúar 2024, birt með fyrirvara um innsláttarvillur, uppreikning.

Skóli og frístund

Gjaldskrá fyrir skólamáltíðir Grunnskóla Seltjarnarness
Seltjarnarnesbær er með þjónustusamning við Skólamat um skólamáltíðir í Grunnskóla Seltjarnarness og er það svo val foreldra hvort og hversu mikið sú þjónusta er nýtt fyrir hvert barn. Foreldrar sjá sjálfir um að skrá börn sín í mataráskrift á heimasíðu Skólamatar ehf., www.skolamatur.is og Skólamatur innheimtir samkvæmt þeirri áskrift. Hægt er að skrá nemendur í áskrift strax í upphafi hvers skólaárs og gera breytingar innan skólaársins samkvæmt þeim skilmálum sem Skólamatur býður upp á í þjónustu sinni.


Á heimasíðu Skólamatar www.skolamatur.is má ennfremur nálgast allar upplýsingar um matseðla ásamt næringarinnihaldi og innihaldslýsingum á öllum réttum, fyrirkomulag mataráskriftar, verðskrá o.fl. Verðskráin sýnir þá upphæð sem foreldrar greiða fyrir hverja máltíð eða aðra hressingu í áskrift en Seltjarnarnesbær niðurgreiðir hluta af verðinu samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar og greiðir þann hluta beint til Skólamatar. 

Gjaldskrá fyrir Skólaskjól og Frístund

Þjónusta og starfsemi

Skólaskjól eða Skjólið er dagvist fyrir nemendur í 1.-4. bekk eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Markmiðið með starfsemi Skjólsins er að mynda umgjörð um heildstæðan skóladag nemenda. Skólaskjólið starfar samkvæmt áherslum og markmiðum skólastefnu Seltjarnarnesbæjar. Þar er leitast við að skapa heimilislegt andrúmsloft þar sem börnin fást við margvísleg þroskandi viðfangsefni, taka þátt í hópastarfi, útivist og leikjum.

Skólaskjólið er opið daglega á starfstíma skóla og býðst nemendum að dvelja þar til allt að kl. 16:30. Opnunartími er í samræmi við starfsáætlun Grunnskóla Seltjarnarness. Skjólið veitir þjónustu eftir þörfum í jóla-, og páskafríum auk þess að vera opið á foreldra- og skipulagsdögum skólans.

Innritun í Skólaskjólið fer fram í maí, fyrir komandi skólaár, gegnum mínar síður á vef Seltjarnarnesbæjar 

Allar breytingar sem gerðar eru eftir innritun skal gera á vef Seltjarnarnesbæjar. Breytingar þurfa að vera gerðar fyrir 20. dag mánaðar svo þær taki gildi frá næstu mánaðamótum. Umsókn gildir eitt skólaár í senn (ágúst-júní). Ef þjónustu er sagt upp skal það gert fyrir 20. hvers mánaðar og tekur uppsögnin gildi um næstu mánaðarmót. Þjónustu er sagt upp á mínum síðum á vef Seltjarnarnesbæjar.

Gjaldskrá Skólaskjóls 1. janúar 2024

Dagvist: Verð kr.
1-10 klst./mán. 5.011
11-20 klst./mán. 10.023
21-30 klst./mán. 15.034
31-40 klst./mán. 20.046
41-50 klst./mán. 25.058
51-60 klst./mán. 30.070
61-70 klst./mán. 35.081
71+ klst./mán. 40.093
Þegar þjónustan er nýtt frá kl. 8:00-13:30
á foreldra- og starfsdögum skóla eða í jóla- og páskafríi
1.930 kr. pr. dag
 

Síðdegishressing:

Síðdegishressing er pöntuð beint í gegnum vefsíðu Skólamatar.

Afslættir:

  • Afsláttur er á milli skólastiga (leikskóla og skólaskjóls).
  • Systkinaafslættir 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn (gildir einnig ef yngra /yngsta systkini er hjá dagforeldri). Fullt gjald greiðist ávallt fyrir yngsta barn.
  • Námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í námi og einstæðir foreldrar fá 40% afslátt af dvalargjaldi.
  • Námsmenn þar sem annað foreldri er í námi fá 25% afslátt af dvalargjaldi.
  • Námsmenn þurfa að framvísa staðfestingu frá viðkomandi skóla fyrir hverja önn og kemur afsláttur til framkvæmda um mánaðamót eftir að staðfestingu er skilað.
  • Afsláttur er ekki veittur af fæðiskostnaði.
  • Einstæðir foreldrar greiða lægra gjald gegn framvísun vottorðs um hjúskaparstöðu (skal skilað árlega) og kemur afsláttur til framkvæmda um mánaðamót eftir að vottorði er skilað.
  • Kaupandi þjónustu nýtur þess afsláttar sem kemur honum best samkvæmt uppfylltum skilyrðum. Afsláttur leggst ekki við afslátt.

Innheimta

Gjöld fyrir þjónustu Skólaskjóls eru innheimt með greiðsluseðli, VISA, MasterCard eða greiðsla fer í gegnum banka. Greiða skal fyrirfram og er eindagi 15. hvers mánaðar, eftir eindaga leggjast á dráttarvextir. Skuldi foreldrar 3 mánuði er þjónustu Skólaskjóls sagt upp og skuldin sett í innheimtu. Greiðsla vegna ágúst og september mánaðar ár hvert er á gjalddaga 1. september og eindagi þann 15 september.

Fullt dvalargjald er greitt fyrir þann tíma sem barnið er skráð í Skólaskjólið, þó barnið nýti ekki skráðan tíma vegna veikinda eða fría. Ef barn er fjarverandi samfellt í 2 vikur eða lengur vegna veikinda eða fría, fellur fæðiskostnaður niður. Foreldrar skulu tilkynna ef barn er fjarverandi vegna veikinda eða fría.

Skipulags- og námskeiðsdagar Skólaskjóls eru tveir á ári og er Skólaskjólið lokað þá daga. Skólaskjólið er lokað í vetrarleyfi skólans, á aðfangadag og gamlársdag.

 

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Gjaldskrá í Tónlistarskóla Seltjarnarness
Tónlistarnám Gjald kr.
Forskóli
0
Grunnnám
140.957
Miðnám
140.957
Framhaldsnám
153.182
Undirleikur
68.630
Hljóðfæraleiga 15.390

Gildir frá 1. janúar 2024

Systkinaafsláttur er 20% fyrir annað barn og 40% fyrir þriðja barn

Hætti nemandi í námi fyrir áramót skulu skólagjöld greidd til áramóta. Hætti nemandi í námi eftir áramót skulu skólagjöld greidd út skólaárið. Sömu skilmálar gilda um hljóðfæragjald.

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Gjaldskrá leikskóla Seltjarnarness

Almennt leikskólagjald án fæðis frá 1. janúar 2024

Klst.
Verð
4 12.996
4,5 14.621
5 16.245
5,5 17.871
6 19.494
6,5 21.119
7 22.744
7,5 24.368
8 25.992
8,5 30.142
9 34.292
 
 
Fæðisgjald frá 1. ágúst 2023
  Einingarverð
pr. dag
Mánaðarverð m.v.
20 virka daga
Morgunverður 187 3.750
Ávaxta-/grænmetisskammtur 133 2.660
Hádegisverður 875 17.506
Nónhressing 300 6.004
Samtals 1.496 29.920
Niðurgreitt af Seltjarnarnesbæ -748 -14.960
Samtals verð til foreldra 748 14.960

Afslættir:

  • Afsláttur er á milli skólastiga (leikskóla og skólaskjóls).
  • Systkinaafslættir 50% fyrir annað barn og 100% fyrir þriðja barn (gildir einnig ef yngra /yngsta systkini er hjá dagforeldri).
  • Námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í námi og einstæðir foreldra fá 40% afslátt.
  • Námsmenn þar sem annað foreldri er í námi fá 25% afslátt.
  • Afsláttur er ekki á fæði.
  • Einstæðir foreldrar greiða lægra gjald gegn framvísun vottorðs um hjúskaparstöðu (skilað 1x á ári).
  • Námsmenn þurfa að framvísa staðfestingu frá viðkomandi skóla fyrir hverja önn og kemur afsláttur til framkvæmda um mánaðamót eftir að staðfestingu er skilað.
  • Kaupandi þjónustu nýtur þess afsláttar sem kemur honum best samkvæmt uppfylltum skilyrðum. Afsláttur leggst ekki við afslátt.

Innheimta

Leikskólagjöld eru innheimt með greiðsluseðli, VISA, MasterCard eða greiðsla fer í gegnum banka. Greiða skal fyrirfram og er eindagi 15. hvers mánaðar, eftir eindaga leggjast á dráttarvextir. Skuldi foreldrar 3 mánuði er barninu sagt upp leikskóladvölinni og skuldin sett í innheimtu.

Leikskólinn er lokaður 4 vikur á sumrin og fellur leikskólagjald þá niður. Fullt leikskólagjald er annars greitt fyrir þann tíma sem barnið er skráð í leikskólann, þó barnið nýti ekki skráðan tíma vegna veikinda eða fría. Ef barn er fjarverandi samfellt í 2 vikur eða lengur vegna veikinda eða fría, fellur fæðiskostnaður niður. Foreldrar skulu tilkynna ef barn er fjarverandi vegna veikinda eða fría.

Skipulags- og námskeiðsdagar leikskólans eru fimm á ári og er leikskólinn lokaður þá daga og þeir auglýstir með a.m.k. mánaðar fyrirvara. Leikskólinn er lokaður á aðfangadag og gamlársdag.

 

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Niðurgreiðslur til einkarekinna leikskóla

Gildir frá 1. janúar 2013

Niðurgreiðslur til einkarekinna leikskóla eru samkvæmt viðmiðunargjaldskrá Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi niðurgreiðslur vegna leikskólavistar utan lögheimilissveitarfélags.

Samþykkt niðurgreiðslu er háð þjónustusamningi milli Skólaskrifstofu Seltjarnarnesbæjar og viðkomandi leikskóla þar sem tryggt er að gjald foreldra sé sambærilegt við gjald sem foreldrum ber að greiða fyrir dvöl í Leikskóla Seltjarnarness.

Í þjónustusamningi sem undirritaður skal af skólaskrifstofu, viðk. leikskóla og foreldrum skal eftirfarandi tilgreint sem skilyrði fyrir greiðslu:

  • Að önnur daggæsluúrræði eru ekki í boði í sveitarfélaginu.
  • Að hlutaðeigandi barn hafi náð 9 mánaða aldri og eigi lögheimili á Seltjarnarnesi.
  • Að viðkomandi leikskóli hafi öll tilskilin starfsleyfi.
  • Að barnið sé slysatryggt.
  • Að fyrir liggi þjónustusamningur milli leikskóla, foreldra og Skólaskrifstofu Seltjarnarnesbæjar.

Í samningnum skal tilgreind sú upphæð sem Seltjarnarnesbær samþykkir að greiða mánaðarlega í allt að 11 mánuðum á ári auk þess sem tilgreina skal mánaðarlegt dvalargjald sem foreldrar skulu greiða.

Greiðslur til dagforeldra, vegna daggæslu barna í heimahúsi

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir að greiða mánaðarlega í ellefu mánuði á ári fjárhæð vegna dvalar barna með lögheimili á Seltjarnarnesi. 
Sjá: Reglur um greiðslur til dagforeldra vegna daggæslu barna í heimahúsi

Greiðsla Seltjarnarnesbæjar til dagforeldra vegna barna með lögheimili á Seltjarnarnesi frá og með 1. janúar 2024:

Fjöldi stunda á dag

Til hjóna og sambúðarfólks

Til einstæðra foreldra og ef báðir foreldrar eru í námi Ef annað foreldri er í námi
Fyrir 6 stunda vistun 54.401 kr. kr. 62.775 kr. 59.412
Fyrir 6,5 stunda vistun 58.934 kr. kr. 68.006 kr. 64.363
Fyrir 7 stunda vistun 63.467 kr. kr. 73.237 kr. 69.314
Fyrir 7,5 stunda vistun 68.001 kr. kr. 79.568 kr. 74.265
Fyrir 8 stunda vistun 72.534 kr. kr. 83.700 kr. 79.216
  • Greitt er fyrir hálfan og heilan mánuð og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
  • Leggja skal fram fjölskylduvottorð í tilviki einstæðra foreldra og námsvottorð skóla í tilviki námsmanna.
  • Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá systkinaafslátt fyrir leikskólabarnið/börnin og eða barn/börn í Skólaskjóli/frístund.
  • Kaupandi þjónustu nýtur þess afsláttar sem kemur honum best samkvæmt uppfylltum skilyrðum. Afsláttur leggst ekki við afslátt.

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Greiðslur til forráðamanna vegna daggæslu barna í heimahúsi

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir mánaðarlegar greiðslur í ellefu mánuði á ári fjárhæð vegna dvalar barna með lögheimili á Seltjarnarnesi.
Sjá: Reglur um greiðslur til forráðamanna vegna daggæslu barna í heimahúsi

Greiðsla Seltjarnarnesbæjar til foreldra vegna barna með lögheimili á Seltjarnarnesi vegna daggæslu í heimahúsum miðast við 35.000 kr. á mánuði til jöfnunar leikskólagjaldi við Leikskóla Seltjarnarness.

  • Greitt er fyrir hálfan og heilan mánuð og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
  • Greiðslum er hætt jafnhliða lokum þjónustu dagforeldra.
  • Upphæð framlags verður endurskoðuð árlega við gerð fjárhagsáætlunar
Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.
Niðurgreiðslur og afslættir af gjaldskrám

Systkinaafsláttur

  • Foreldrar / forráðamenn systkina sem njóta þjónustu dagforeldra eða stofnana á Fræðslusviði geta sótt um systkinaafslátt.
  • Systkinaafsláttur er samræmdur milli þjónustu dagforeldra og stofnana á sviðinu með þeim hætti að annað barn nýtur 50% afsláttar og systkini um fram annað barn njóta 100% afsláttar af dvalargjöldum. Fullt gjald greiðist ávallt fyrir yngsta barnið, en afsláttur reiknast á gjöld fyrir eldri systkini.
  • Afsláttur er ekki veittur af fæðiskostnaði.

Afsláttur til námsmanna

  • Námsmenn þar sem báðir foreldrar eru í námi fá 40% afslátt fyrir hvert barn af dvalargjöldum í leikskóla og Skólaskjóli auk niðurgreiðslu af þjónustu dagforeldra.
  • Námsmenn þar sem annað foreldri er í námi fá 25% afslátt fyrir hvert barn af dvalargjöldum í leikskóla og Skólaskjóli auk þess geta sótt um sérstaka niðurgreiðslu af þjónustu dagforeldra.
  • Námsmenn þurfa að framvísa staðfestingu á skólavist frá viðkomandi skóla fyrir hverja önn, þar sem fram kemur að viðkomandi sé skráður í að lágmarki 22 ECTS einingar á önn. Afsláttur kemur til framkvæmda um mánaðamót eftir að staðfestingu er skilað.
  • Afsláttur er ekki veittur af fæðiskostnaði.

Afsláttur til einstæðra foreldra

  • Einstæðir foreldrar fá 40% afslátt af dvalargjöldum í leikskóla og Skólaskjóls auk þess geta sótt um sérstaka niðurgreiðslu af þjónustu dagforeldra.
  • Afsláttur til einstæðra foreldra fæst gegn framvísun vottorðs um hjúskaparstöðu (skila þarf vottorði fyrir hvert skólaár).
  • Afsláttur er ekki veittur af fæðiskostnaði.

Afslættir eru ekki afturvirkir

  • Afslættir eru ekki afturvirkir og það er á ábyrgð foreldra að óska eftir þeim í umsókn.
  • Þeir taka gildi í næsta mánuði eftir að beiðni berst til stofnunar.
  • Kaupandi þjónustu nýtur þess afsláttar sem kemur honum best samkvæmt uppfylltum skilyrðum.
  • Afsláttur leggst ekki við afslátt.

Gjaldskrár stofnana

Gjaldskrá sundlaugar Seltjarnarness

Gjaldtaka í sundlaugina fylgir gjaldskrá Seltjarnarnesbæjar og er auglýst á heimasíðunni.

Fullorðnir frá 18 ára

Stakur 10 skipta* 30 skipta** 3ja mán. kort 1/2 árs kort Árskort
1.200 5.800 15.300 15.300 21.800 42.100
*Rennur út eftir 12 mánuði.
** Rennur út eftir 36 mánuði.

Börn frá 6 ára aldri

Stakur 10 skipta* Árskort
140 1.300 13.200

*Rennur út eftir 12 mánuði


Eldri borgarar, 67 ára og eldri fá frítt í sund

Leiga sundfata 1.500 og 1.000 til baka
Leiga handklæðis 1.650 og 1.000 til baka
Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.
Gjaldskrá Fræðasetur og Vitavarðarhús í Gróttu

Fyrir aðstöðu í Fræðasetrinu í Gróttu, afnot af húsi, búnaði og umsýslu starfsmanna, skal greiða eftirfarandi:

Skólahópar innan Seltjarnarnesbæjar Verð kr.
Heimsókn, 3-6 klst. - pr. barn 370
Gisting í Fræðasetri - hver byrjaður sólarhringur 18.100
Aðrar stofnanir Seltjarnarnesbæjar Verð kr.
Fundir, námskeið og ráðstefnur, 3-6 klst. 15.000
Fundir, námskeið og ráðstefnur, minna en 3 klst.  10.000
Lengri dvöl - hver byrjaður sólarhringur 20.000
Skólahópar utan Seltjarnarnesbæjar Verð kr.
Heimsókn, fundir, námskeið og ráðstefnur, 3-6 klst. 21.000
Gisting í Fræðasetri - hver byrjaður sólarhringur 27.150
Almenn leiga Verð kr.
Fundir, námskeið og ráðstefnur, 3-6 klst. 25.000
Lengri dvöl - hver byrjaður sólarhringur 40.000
Lengri tímabil - samningsatriði  

Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023.

Gjaldskrá Bókasafns Seltjarnarness

Gjaldskrá Bókasafns Seltjarnarness gildir frá 1. janúar 2024

Árgjald Verð
Lánþegakort (18-67 ára)  3.060 kr. árið
Börn og unglingar undir 18 ára aldri, eldri borgarar og öryrkjar greiða ekki árgjald. Ókeypis
Gild lánþegaskírteini í BS veita lánþegum aðgang að Borgarbókasafni Reykjavíkur og Bókasafni Mosfellsbæjar.  Sömuleiðis gilda lánþega skírteini í BR og BM í Bókasafni Seltjarnarness. Gildistími skírteina er samræmdur í söfnunum.
Dagsektir Verð
Bækur og önnur gögn 75 kr.
Hámarkssekt á gagn 800 kr.
Hámarkssekt 8.230 kr.
Millisafnalán 1.350 kr.
Önnur gjöld Verð
Nýtt lánþegakort fyrir glatað kort
(tilkynna ber bókasafninu ef skírteini glatast)
110 kr.
Ljósrit/prentun A4 sv/hv 65 kr.
Ljósrit/prentun A3 sv/hv 90 kr.
Ljósrit/prentun A4 lit 165 kr.
Ljósrit/prentun A3 lit 220 kr.
Skönnun 55 kr.
Viðmiðunargjald fyrir glötuð gögn Verð
Glatist eða skemmist safnefni í vörslu lánþega greiðir hann andvirði þess skv.:   
Ný gögn innan 2ja ára Innkaupsverð
Eldri bækur, hljóðbækur, myndbönd og tungumálanámskeið 3.900 kr.
Gallerí Grótta - fjölnotasalur með skjávarpa  Verð
Leiga á sal vegna afnota fyrir fundi, fyrirlestra, námskeið o.fl. 27.500 kr.
Glös og þvottur 6.000 kr.
Kaffi - 16 bollar 3.600 kr.
    Það er alltaf á ábyrgð lánþega að skila gögnum safnsins tímanlega. Sending áminningarbréfa í tölvupósti er aukaþjónusta sem safnið veitir og má ekki treysta á að þau berist.
    Gjaldskrá fyrir árið 2024 samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar þann 28. desember 2023
Gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness - fráveita

Gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita, nr. 900/2012 

Breytingar:
Auglýsing nr. 1693/2022 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita, nr. 900/2012
Auglýsing nr. 1398/2020 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita, nr. 900/2012
Auglýsing nr. 1365/2018 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita, nr. 900/2012 
Auglýsing nr. 1037/2014 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, fráveita, nr. 900/2012

Sé munur á texta á heimasíðu gildir birt PDF skjal Stjórnartíðinda.

Fráveita - gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness 

1. gr.

Af öllum fasteignum í Seltjarnarnesbæ, sem liggja við vegi eða opin svæði, þar sem holræsalagnir liggja, skal greiða árlegt fráveitugjald til bæjarsjóðs Seltjarnarnesbæjar.

2. gr.

Álagningarstofn fráveitugjalds skv. 2. gr. skal vera 0,14250% af fasteignamati allra húsa og lóða skv. lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 með síðari breytingum.

Sé ekkert mannvirki á lóð greiðist ekkert fráveitugjald.

Stofngjald vegna tengingar og lagningar frárennslislagna frá lóðarmörkum húseiganda að holræsakerfi er kr. 242.156, sbr. samþykkt um fráveitu í Seltjarnarnesbæ nr. 1101/2020.

Fráveita gjaldskrá  Janúar 2023
Álagningarstofn (hlutfall af fasteignamati allra húsa og lóða) 0,1425%
Stofngjald vegna tengingar og lagningar frárennslilagna frá lóðarmörkum húseigenda að holræsakerfi 242.156 kr. 

3. gr.

Gjalddagar fráveitugjalds skulu vera þeir sömu og bæjarstjórn ákveður fyrir fasteigna­skatt og skal innheimtu þess hagað á sama hátt og innheimtu fasteignaskatts.

Skráður eigandi fasteignar skv. matsskrá Fasteignamats ríkisins eða skráður umráðandi ber ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds.

4. gr.

Húseigandi og lóðarhafi, lóðareigandi, ef um eignarlóð er að ræða bera ábyrgð á greiðslu fráveitugjalds, og er gjaldið tryggt með lögveði í lóð og mannvirkjum.

5. gr.

Við álagningu árlegs fráveitugjalds getur sveitarstjórn með einfaldri samþykkt sinni nýtt sér heimild í 2. mgr. 87. gr. vatnalaganna, sbr. lög nr. 137/1995, um niðurfellingu eða lækkun til tekjulítilla elli- og örorkulífeyrisþega.

6. gr.

Gjaldskrá þessi, sem samin er samkvæmt samþykkt bæjarstjórnar um álagningu fráveitugjalds frá 29. nóvember 2017 skv. 15. gr. laga nr. 9/2009 um uppbyggingu og rekstur fráveitu og skv. 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, öðlast gildi 1. desember nk.

Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 1168/2010 með síðari breytingum.

 

Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, 14. desember 2022.

Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2023

Gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnaness - vatnsgjald, notkunargjald og heimæðargjald

Auglýsing um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, vatnsgjald, notkunargjald og heimæðargjald nr. 219/2018

Auglýsing um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnaness, vatnsgjald notkunargjald og heimæðargjald, nr. 619/2018 
Gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, vatnsgjald, notkunargjald og heimæðargjald nr.619/2018 

1. gr.

Vatnsgjald og stofn til álagningar.

Vatnsgjald af íbúðarhúsnæði er 0,0855% af fasteignamati allra mannvirkja og lóða, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum.

Vatnsgjald af atvinnuhúsnæði er 0,0855% af fasteignamati mannvirkja og lóða, samkvæmt lögum um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001, með síðari breytingum.

2. gr.

Notkunargjald.

Notkunargjald (aukavatnsskattur) leggst á stórnotendur skv. mæli krónur 44,50 pr. m³.

3. gr.

Heimæðargjald.

Eigandi fasteignar skal greiða kostnað við lagningu heimæðar og uppsetningu að húsi skv. gjaldskrá þessari. Um heimæðargjald gilda að öðru leyti lög um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, með síðari breytingum, reglugerð um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 401/2005, með síðari breytingum og reglugerð um Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237/2011.

Fjárhæðir gjalda vegna heimæða eru eftirfarandi:

 

  BVT 186,9 Janúar 2024
Fyrir heimæð 25-32 mm 249.621 kr.
Fyrir heimæð 40-63 mm  465.198 kr.
Fyrir heimæð stærri en 63 mm 780.579 kr.
Viðbótargjald fyrir heimæð lengri en 20 m 3.353 kr. pr. m

Gjaldið skal taka breytingum í janúar ár hvert miðað við byggingarvísitölu og skal grunnvísitala vera byggingarvísitala í desember 2018 141,6 stig.

4. gr.

Gjalddagar.

Gjalddagar vatnsgjalds skulu vera þeir sömu og gjalddagar fasteignaskatta og greiðist vatnsgjaldið með fasteignasköttum. Þegar heimlögn hefur verið lögð er heimlagnargjald gjaldkræft, sbr. 9. gr. reglugerðar nr. 237/2011 um Veitustofnun Seltjarnarness.

5. gr.

Ábyrgð á greiðslu gjalda.

Skráður eigandi fasteignar ber ábyrgð á greiðslu vatnsgjalds og heimæðargjalds. Ef notandi er annar en eigandi, ber hann ábyrgð á greiðslu notkunargjalds.

Vatnsgjaldi og heimæðargjaldi, ásamt innheimtukostnaði og vöxtum, fylgir lögveðsréttur í fasteign í tvö ár frá gjalddaga. Lögveðið gengur fyrir eldri sem yngri samnings- og aðfararveðum og yngri lögveðum, skv. 9. gr. laga nr. 32/2004, með síðari breytingum. Notkunargjald og leigugjald fyrir vatnsmæli, ásamt áföllnum kostnaði og vöxtum, má taka fjárnámi.

6. gr.

Gildistaka gjaldskrár.

Gjaldskrá þessi er staðfest og samþykkt af bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, skv. 7. mgr. 5. gr. og 10. gr. laga um vatnsveitur sveitarfélaga nr. 32/2004, með síðari breytingum, 11. gr. reglugerðar nr. 401/2005 um vatnsveitur sveitarfélaga, með síðari breytingum, og 6. gr. reglugerðar fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237/2011, til að öðlast þegar gildi. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, kalt vatn, nr. 787/2012, með síðari breytingum.

Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, 14. desember 2022

Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 6. janúar 2023

 
Gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness - heitt vatn

Gjaldskrá veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012. 
Breytingar:
Auglýsing nr. 73/2024 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012
Auglýsing nr. 1212/2023 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012
Auglýsing nr. 965/2021 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012. 
Auglýsing nr. 1448/2020 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012.
Auglýsing nr. 73/2020 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012. 
Auglýsing nr. 1266/2018 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012. 
Auglýsing nr. 1169/2017 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012. 
Auglýsing nr. 7/2016 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012. 
Auglýsing nr. 1203/2014 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012. 
Auglýsing nr. 1057/2012 um breytingu á gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn, nr. 901/2012. 


Gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn

I. KAFLI

1. gr.

Veitustofnun Seltjarnarness selur hitaorku úr hitakerfum þeim, sem gerð hafa verið eða verða gerð á Seltjarnarnesi, og til þeirra húsa, sem fá vatn frá aðfærsluæð, eftir þeim reglum, sem settar eru í gjaldskrá þessari sbr. reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnar­ness nr. 237, 4. mars 2011.

Gjaldskrá þessi gildir fyrir heitt vatn á veitusvæðum Veitustofnunar Seltjarnarness.

Í ríkissjóð skal greiða sérstakan skatt af heitu vatni, 2% af smásöluverði. Innheimta skatts­ins er miðuð við áætlaða sölu. Virðisaukaskattur bætist við öll gjöld samkvæmt gjald­skrá þessari.

2. gr.

Veitustofnun Seltjarnarness lætur hverju húsi, sem er í sambandi við vatnsæðar hennar, í té vatnsmagn, er ætla má að nægi til hitunar á húsinu, enda séu ofnar hússins nægilega stórir að dómi hitaveitustjóra.

Veitustofnun Seltjarnarness lætur setja rennslismæla við hvert upphitunarkerfi og miðast gjald hitaveitunnar fyrir selda orku við mælda rúmmetra vatns.

Veitustofnun Seltjarnarness lætur húseigendum í té aukamæli, ef þess er óskað.

II. KAFLI

3. gr.

Gjöld fyrir afnot af heita vatninu eru sem hér segir:

Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, húshitun 146,49 2,93 165,86 kr./m3

 

Tegund Veitusvæði Kr. 2% skattur Með 24% vsk Grunnur
Einingaverð Sala í þéttbýli, til snjóbræðslu 146,49 2,93 185,28 kr/m³
Einingaverð Sala í þéttbýli, til iðnaðar 146,49 2,93 185,28 kr/m³

 

Tegund Stærð mælis Kr. 2% skattur Með 11% vsk Grunnur
Fast verð A: 15 mm og stærri 37,07 0,74 41,97 kr./dag

Fast gjald er hluti af almennum taxta og í öllum öðrum samningum þar sem selt er sam­kvæmt mæli.

Fast verð er fyrir föstum kostnaði og er óháð stærð mælis. Gjaldinu er dreift jafnt niður á tímabil reikninga.

4. gr.

Hitaveitugjöld verða krafin annan hvern mánuð, og skulu þau greiðast til innheimtu­stofnunar, sem bæjarstjórn ákveður. Það eru vanskil ef gjöld eru ekki greidd innan 15 daga frá gjalddaga. Heimilt er að reikna dráttarvexti eins og þeir eru ákveðnir hjá innlána­stofnunum sbr. 13. gr. laga nr. 10/1961 og ákvörðun Seðlabanka Íslands á hverjum tíma.

III. KAFLI

5. gr.

Fast gjald á heimæð fyrir hús allt að 300 m3 að stærð kr. 372,422
Umframgjald fyrir hús að stærð 300-1000 m3 kr. 444 pr. m3
Umframgjald fyrir hús að stærð yfir 1000 m3 kr. 297 pr. m3
1 rennslismælir á grind kr. 117,815

6. gr.

Gjöld skv. 5. gr. eru miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar. Er veitunefnd heimilt að breyta þeim í samræmi við þær breytingar, sem á nefndri vísitölu verða, að fenginni staðfestingu iðnaðarráðuneytisins hverju sinni.

7. gr.

Nú eru leyfð afnot af heitu vatni til annars en til húshitunar, og er þá Veitustofnun Seltjarnarness heimilt að ákveða gjald fyrir þau afnot sérstaklega í hverju tilviki með hliðsjón af gjaldskrá þessari.

8. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má taka fjárnámi á kostnað gjaldanda.

9. gr.

Veitustofnun Seltjarnarness hefur rétt til að loka aðrennsli heita vatnsins að húsi eða íbúð notanda, sem vanrækir að greiða hitaveitugjöld. Fyrirætlun um lokun ber að tilkynna með 3ja daga fyrirvara.

Allan kostnað við lokun og opnun á ný greiðir sá, sem í vanskilum er, kr. 8,280 auk vsk. í hvert skipti.

Önnur þjónustugjöld Veitustofnunar Seltjarnarness eru eftirfarandi:

Seðilgjald kr. 238
Tilkynningar og greiðslugjald kr. 90
Auka álestur auk vsk. kr. 2.760
Innheimtuviðvörun kr. 1.104
Gjald fyrir opnun utan dagvinnutíma auk vsk. kr. 20,700

10. gr.

Eftirlitsmanni Veitustofnunar Seltjarnarness skal hvenær sem er frjáls aðgangur að öllum hitakerfum, sem tengd eru við hitaveituna. Er húseiganda skylt að hlíta tafarlaust fyrirmælum hans um viðgerðir á bilunum og sérhverjum ráðstöfunum til varnar gegn misnotkun heita vatnsins.

Við gjaldskrána bætist virðisaukaskattur samkvæmt lögum og reglum á hverjum tíma.

Gjaldskrá þessi, sem samin er og samþykkt af veitustjórn og bæjarstjórn Seltjarnarness staðfestist hér með samkvæmt reglugerð fyrir Veitustofnun Seltjarnarness nr. 237, 4. mars 2011 og orkulögum nr. 58, 29. apríl 1967, með síðari breytingum, til að öðlast gildi 1. nóvember 2012 og birtist til eftirbreytni öllum sem hlut eiga að máli. Jafnframt er úr gildi felld gjaldskrá Veitustofnunar Seltjarnarness, heitt vatn nr. 1289/ 2011.

Samþykkt í bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar, 13. desember 2023

Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.

B deild - Útgáfud.: 26. janúar 2024
Síðast uppfært 17. nóvember 2023
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?