Fara í efni

Reglur um greiðslur til forráðamanna vegna daggæslu barna í heimahúsi

Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir mánaðarlegar greiðslur í ellefu mánuði á ári fjárhæð vegna dvalar barna með lögheimili á Seltjarnarnesi.

Skilyrði fyrir greiðslu eru:

  • Að barnið eigi lögheimili á Seltjarnarnesi.
  • Að barnið sé hjá dagforeldri hafi starfsleyfi skv. reglugerð nr. 907/ 2005 um daggæslu barna í heimahúsum.
  • Að barn hafi náð 12 mánaða aldri.
  • Að barnið sé slysatryggt hjá dagforeldri.
  • Að foreldri hafi samþykkta umsókn niðurgreiðslur Seltjarnarnesbæjar til handa dagforeldri.

Greiðsla Seltjarnarnesbæjar til foreldra með lögheimili á Seltjarnarnesi vegna daggæslu barna í heimahúsum

  • Miðast við 35.000 kr. á mánuði til jöfnunar leikskólagjaldi við Leikskóla Seltjarnarness.
  • Greitt er fyrir hálfan og heilan mánuð og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
  • Greiðslum er hætt jafnhliða lokum þjónustu dagforeldra.
  • Upphæð framlags verður endurskoðuð árlega við gerð fjárhagsáætlunar

Gildir frá 1. janúar 2021.

Síðast uppfært 29. nóvember 2022
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?