Bæjarstjórn Seltjarnarness samþykkir að greiða mánaðarlega í ellefu mánuði á ári fjárhæð vegna dvalar barna með lögheimili á Seltjarnarnesi. Bæjarstjórn ákveður fjárhæð hverju sinni að fenginni tillögu skólanefndar.
Skilyrði fyrir greiðslu eru:
- Að barnið eigi lögheimili á Seltjarnarnesi.
- Að viðkomandi dagforeldri hafi starfsleyfi samkvæmt reglugerð nr. 907/2005 um daggæslu barna í heimahúsum.
- Að barn hafi náð 12 mánaða aldri.
- Að barnið sé slysatryggt.
- Að foreldri sæki um niðurgreiðslur til Seltjarnarnesbæjar, á þar til gerðu eyðublaði.
- Greitt er fyrir hálfan og heilan mánuð og miðast við 1. og 15. hvers mánaðar.
- Leggja skal fram fjölskylduvottorð í tilviki einstæðra foreldra og námsvottorð skóla í tilviki námsmanna.
- Foreldrar sem eiga tvö eða fleiri börn fá systkinaafslátt fyrir leikskólabarnið/börnin og eða barn/börn í Skjóli/Frístund.
- Kaupandi þjónustu nýtur þess afsláttar sem kemur honum best samkvæmt uppfylltum skilyrðum.
- Afsláttur leggst ekki við afslátt.
Gildir frá 1. janúar 2021.
Síðast uppfært 23. desember 2025