Sundlaug Seltjarnarness er staðsett í Íþróttamiðstöðinni við Suðurströnd og er í nánum tengslum við íþróttahúsið, knattspyrnuvöllinn, grunnskólann og World Class.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi: Haukur Geirmundsson
Athugið! Árleg vorlokun sundlaugarinnar verður dagana 19.-23. maí en þá fara fram árleg þrif og viðhaldsaðgerðir. Sundlaugin opnar aftur kl. 8.00 laugardaginn 24. maí nk.

Sérstaða sundlaugarinnar
Sundlaug Seltjarnarness er einstök en sérstaða hennar er hið steinefnaríka vatn sem notað er beint frá borholu Hitaveitu Seltjarnarness. Efnasamsetning vatnsins fer vel í viðkvæma húð og exem. Sundlaugin býður upp á fjölbreytta aðstöðu utandyra og eiga allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem fólk kemur til þess að synda, leika sér, slaka á í mjúku vatninu, skella sér í kaldan pott eða ræða heimsmálin í heitu pottunum.
Aðstaða sundlaugarinnar
- 25 metra sundlaug með 4 sundbrautum - hitastig 29°C.
- 48 m 2 barnalaug 90cm djúp - hitastig 35°C.
- Barnavaðlaug 40cm djúp - hitastig 36-38°C.
- 4 heitir pottar þar af einn nuddpottur - hitastig frá 38-44°C
- 2 kaldir pottar - hitastig 4-8°C.
- Eimbað - hitastig 40-50°C.
- Rennibraut.
- Leiktæki fyrir börn
- Útiskýli.
- Klefi fyrir fatlaða og eldri borgara sem geta verið með aðstoðarmanneskju óháð kyni
Afþreying í boði
- Sundleikfimi 4x í viku, allir velkomnir: mánudaga og miðvikudaga kl. 18.30 - 19.00 og þriðjudaga og fimmtudaga kl. 07:10.
- Sundflot 1x í viku.
- Sundæfingar hjá sunddeild KR.
- Skriðssundsnámskeið fyrir fullorðna.
- Nuddstofa er opin alla virka daga.
- World Class rekur glæsilega heilsurækt í beinum tengslum við sundlaugina og þar er boðið uppá ýmsa tíma bæði í tækjasal og íþróttasölum.
Opnunartími á almennum frídögum
Frídagur |
Opnunartími |
Nýársdagur |
Lokað |
Skírdagur |
8:00 - 19:30 |
Föstudagurinn langi |
Lokað |
Páskadagur |
Lokað |
Annar í páskum |
8:00 - 19:30 |
Verkalýðsdagurinn, 1. maí |
Lokað |
Uppstigningardagur |
8:00 - 19:30 |
Hvítasunnudagur |
8:00 - 19:30 |
Lýðveldisdagurinn, 17. júní |
Lokað |
Frídagur Verslunarmanna |
8:00 - 19:30 |
Þorláksmessa |
6:30 - 19:30 |
Aðfangadagur jóla |
8:00 - 12:30 |
Jóladagur |
Lokað |
Annar í jólum |
Lokað |
Gamlársdagur |
8:00 - 12:30 |
Árleg vorlokun sundlaugar
- Sundlaug Seltjarnarness lokar á ári hverju í 5 virka daga í maí vegna viðhalds og þrifa.
- Nákvæm tímasetning er auglýst sérstaklega.