Fara í efni

Áhugaverðir staðir á Seltjarnarnesi

Á Seltjarnarnesi má finna hina ýmsu áhugaverðu staði sem tengjast meðal annars jarðfræði, útivist og menningu.

Grótta

Grótta er fyrst nefnd í fógetareikningum frá árunum 1547-52. Nafnið þykir fornlegt og benda til þess að þar hafi lengi verið búið. Á fyrri árum stóð bærinn Grótta ekki á eyju heldur á breiðu nesi. Árið 1703 er talin hjáleiga frá Nesi. Er jörðin alla öldina nefnd meðal átta bestu jarða Framnessins. Í Básendaflóðinu 1799 varð Grótta að eyju og var jörðin talin óbyggileg eftir það. Kveikt var á fyrsta vitanum í Gróttu þann 1. september 1897 og síðan var núverandi viti reistur árið 1947 og hefur lýst sjófarendum æ síðan.

Nes við Seltjörn

Landslæknisembætti Íslands var stofnað með konunglegri tilskipan árið 1760. Í framhaldi af því var Nesstofa byggð á árunum 1761-63, sem læknissetur, lyfjaverslun og vísir að fyrsta læknaskóla landsins. Landlæknar gegndu þá einnig uppfræðslu yfirsetukvenna og tilvonandi læknisefna.Landlæknar og lyfsalar sátu um lengri tíma í Nesi. Þar bjó m.a. Björn Jónsson, fyrsti lyfsalinn á Íslandi sem var skipaður í embætti árið 1772. Oddur Thorarensen var síðastur lyfsala í Nesi en hann flutti apótekið með sér til Reykjavíkur árið 1834.

Valhúsahæð

Á öldum áður stóðu þar hús sem geymdu fálka konungs. Á hæðinni er fyrsta hringsjá Ferðafélags Íslands sem reist var árið 1938. Leifar af fornum landmerkjagarði frá 11.-13. öld, sem liggur þvert yfir hæðina frá norðri til suðurs, er einnig að finna á Valhúsahæð. Á hæðinni var reist ljósker árið 1883, til leiðbeiningar sjófarendum. Siglingamerki var síðan reist í Gróttu árið 1897.

Á hernámsárunum reistu Bretar Camp Grotta á Valhúsahæð, þar sem bæði voru braggar og skotvarnabyrgi. Einnig voru settar upp miklar loftvarnabyssur og fallbyssur til að verja innsiglinguna til Reykjavíkur og Hvalfjarðar. Einu ummerkin nú eru steyptar grunnplötur og stakar rústir skotvarnabyrgja.Valhúsahæð hefur verið á náttúruminjaskrá frá 1981 og vesturhluti hæðarinnar var friðlýstur sem náttúruvætti árið 1997.

Gamli Mýrarhúsaskóli

Húsið var reist árið 1906 og hýsti barnaskóla Nessins fram til 1960 þegar ný skólabygging var vígð. Bæjarskrifstofur Seltjarnarness voru síðan í húsinu til ársins 1989 er skrifstofurnar voru fluttu í nýtt húsnæði við Austurströnd 2. Þá voru skrifstofur félagsþjónustunnar áfram í húsinu en haustið 2021 fékk húsið aftur sitt uprunalega hlutverk er þar var opnaður ungbarnaleikskóli. 

 

Síðast uppfært 01. desember 2022
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?