Fara í efni

Reglur Æskulýðs- og íþróttaráðs Seltjarnarness fyrir úthlutun ferðastyrkja vegna keppnisferða einstaklinga til útlanda

Markmið styrkjanna er að koma til móts við kostnað einstaklinga 13 ára og eldri sem hafa lögheimili á Seltjarnarnesi vegna keppnisferða til útlanda. Heimilt er að styrkja einstaklinga sem fara á alþjóðleg opinber mót og önnur þau mót sem ÍTS hefur samþykkt. ÍTS áskilur sér rétt á að endurmeta aldur í hverju tilfelli fyrir sig

ÍTS er heimilt að meta styrkhæfni þeirra ferða sem á einhvern hátt eru styrktar annarsstaðar.

Einstaklingum er heimilt að sækja um styrk fyrir eina ferð á ári. Meta skal sérstaklega óskir um styrki umfram það. Sé umsækjandi ekki fjárráða sökum aldurs skal forráðamaður sækja um styrkinn.

Upphæð ferðastyrkja tekur mið af árlegu framlagi Seltjarnarnesbæjar. Styrkurinn ákvarðast af kostnaði hverrar ferðar, mikilvægi móts og getu einstaklings. Styrkurinn er að hámarki kr. 30.000.-

Sækja skal um styrk áður en ferð er farin. Umsókn skal fylgja afrekaskrá, heiti móts, allar kostnaðartölur, hvert ferðinni er heitið, tilgangur og dagsetningar
Umsóknum skal skilað til framkvæmdastjóra íþrótta-, tómstunda og æskulýðssviðs á skrifstofu hans eða í rafpósti.

Verði félag/deild/sérsamband eða einstaklingur uppvís að því að gefa rangar upplýsingar um ferðir getur ÍTS svipt viðkomandi aðila öllum styrkjum í 1-3 ár.

Allar styrkbeiðnir sem sendar eru til ÍTS eru teknar til umfjöllunar á fundum ÍTS, sem metur hvaða umsóknir skulu teljast styrkhæfar hverju sinni.

Úthlutun styrkja miðaðst við fjárframlög ÍTS.


Samþykkt á fundi ÍTS þann 10. desember 2015.

 

Íþrótta- og tómstundaráð Seltjarnarnes

Síðast uppfært 12. desember 2022
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?