Fara í efni

17. júní hátíðarhöld á Seltjarnarnesi

Það verður mikið um að vera og fjölbreytt dagskrá á Seltjarnarnesi á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Hátíðin er fyrir alla fjölskylduna og frítt verður í alla skemmtun og leiktæki.

HÁTÍÐARDAGSKRÁ 17. JÚNÍ 2023

Kl. 10-12 Bátasigling frá smábátahöfninni
Siglingafélagið Sigurfari og Björgunarsveitin Ársæll bjóða börnum í fylgd með fullorðnum upp á bátsferðir frá smábátahöfninni við Bakkavör. Björgunarvesti fyrir alla. Siglingar eru háðar veðurfari.

Kl. 11.00 Hátíðarguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari. Rótarýmenn taka þátt í messunni og flytur Gunnar Guðmundsson forseti klúbbsins hugleiðingu. Boðið verður upp á kaffiveitingar í þjóðhátíðarstíl eftir messu í safnaðarheimilinu.

Kl. 12.45 Skrúðganga frá Leikskóla Seltjarnarness yfir í Bakkagarð
Lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarness, trúðar, stultufólk og fánaberar í broddi fylkingar ásamt lögreglufylgd.

DAGSKRÁ Í BAKKAGARÐI HEFST KL. 13.00

  • Jóhann Örn Ólafsson betur þekktur sem Jói dans stýrir stemningunni

  • Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar flytur hátíðarávarp

  • Fjallkonan 2023 flytur ljóðið Sólin úti á Nesi eftir Auði Jónsdóttur
    Þess má geta að ljóðið er sérstaklega samið af Auði fyrir fjallkonuna af þessu tilefni.

  • Íþróttaálfurinn og Solla stirða mæta hoppandi hress

  • Júlí Heiðar og Kristmundur syngja sína vinsælustu smelli

  • Sylvía Erla og Árni Beinteinn syngja og dansa með börnunum

  • Hljómsveitin Karma Brigade stígur á stokk með kraftmikla sviðsframkomu og söng.
    Karma Brigade er skipuð ungu fólki sem hefur spilað lengi saman og getið sér gott orð. Í hljómsveitinni er Seltirningurinn Jóhann Egill Jóhannsson en auk hans skipa sveitina Agla Bríet Bárudóttir, Steinunn Ólafsdóttir, Alexander Grybos og Hlynur Sævarsson.

LEIKTÆKI OG STEMNING FRÁ KL. 13-15 – FRÍTT Í ÖLL TÆKI Í BAKKAGARÐI

  • Lazertagvöllur
  • Rennibraut, þrautabraut og hoppukastali*
  • Vatnaboltar
  • Hestateymingar kl. 12.45 - 14.45
  • Andlitsmálning
  • Myndaspjöld
  • Kandífloss, blöðrur, fánar, þjóðhátíðarnammi, pylsur, popp, kaffi, gos og hvað eina!

Athugið!
Suðurströnd verður lokuð bílaumferð að hluta til, til kl. 16.30.
*Hoppukastalar eru háðir veðri og verða teknir niður ef of vindasamt eða blautt.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?