Fara í efni

17. júní 2025 hátíðardagskrá á Seltjarnarnesi

Hátíðardagskrá á 17. júní. Það verður mikið um að vera og fjölbreytt dagskrá á Seltjarnarnesi á þjóðhátíðardegi Íslendinga. Hátíðin er fyrir alla fjölskylduna og frítt í alla skemmtun og leiktæki.

HÁTÍÐARDAGSKRÁ Á 17. JÚNÍ 2025

Kl. 10-12 Bátasigling frá smábátahöfninni
Siglingafélagið Sigurfari og Björgunarsveitin Ársæll bjóða börnum í fylgd með fullorðnum upp á bátsferðir frá smábátahöfninni við Bakkavör. Björgunarvesti fyrir alla. Siglingar eru háðar veðurfari.

Kl. 11.00 Hátíðarguðsþjónusta í Seltjarnarneskirkju
Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar fyrir altari og Dr. Svana Helen Björnsdóttir verkfræðingur, bæjarfulltrúi og formaður sóknarnefndar flytur hugleiðingu. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Rótarýmenn taka þátt í messunni og bjóða upp á kaffiveitingar í þjóðhátíðarstíl eftir messu í safnaðarheimilinu.

Kl. 12.45 Skrúðganga frá Leikskóla Seltjarnarness yfir í Bakkagarð
Lúðrasveit Tónlistarskóla Seltjarnarness, trúðar, stultufólk og fánaberar í broddi fylkingar ásamt lögreglufylgd.

DAGSKRÁ Í BAKKAGARÐI HEFST KL. 13.00

    • Geir Zoëga Seltirningurinn hressi stýrir stemningunni.
    • Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar flytur hátíðarávarp.
    • Fjallkonan 2025 flytur ljóð.
    • Elsa í Frost stígur töfrandi á svið í öllu sínu veldi.
    • Gugusar söngkonan kraftmikla gleður gesti í garðinum.
    • Emmsjé Gauti tryllir lýðinn eins og honum einum er lagið.

LEIKTÆKI OG STEMNING FRÁ KL. 13-15 – FRÍTT Í ÖLL TÆKI Í BAKKAGARÐI

  • Lazertagvöllur
  • Rennibraut, þrautabraut og hoppukastalar*
  • Vatnaboltar
  • Hestateymingar kl. 12.45 - 14.45
  • Andlitsmálning
  • Myndaspjöld
  • Kandífloss, blöðrur, fánar, þjóðhátíðarnammi, pylsur, popp, kaffi, gos og hvað eina!

Athugið!
Suðurströnd verður lokuð bílaumferð að hluta til, til kl. 16.30.
*Hoppukastalar eru háðir veðri og verða teknir niður ef of vindasamt eða blautt.

Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?