Fara í efni

Bangsadagurinn

Bangsagisting á Bókasafni Seltjarnarness Í tilefni af alþjóðlega bangsadeginum þann 27. október er böngsum (og öðrum mjúkdýrum) boðið að koma og gista á bókasafninu.
Í tilefni af alþjóðlega bangsadeginum þann 27. október er böngsum (og öðrum mjúkdýrum) boðið að koma og gista á bókasafninu. Börnin fylla út þar til gert leyfisbréf þar sem barnið fyllir út nafn bangsa, eiganda og ýmsar aðrar nauðsynlegar upplýsingar um bangsa sem gott er fyrir starfsfólk bókasafnsins að vita af t.d. hvað honum finnst skemmtilegt eða leiðinlegt.
Bangsarnir fá að vaka fram eftir og verður boðið upp á ýmis konar skemmtun, sögustund, snarl og leiki. Starfsmenn munu taka myndir af skemmtuninni.
Skildu bangsann þinn eftir á safninu fyrir klukkan 18. þriðjudaginn 27. október.
Bangsann þarf að sækja daginn eftir, miðvikudaginn 28. október á milli kl. 13 og 18.
Reglur fyrir gistinguna:
Ekkert aldurstakmark.
Verið viss um að bangsi og eigandi séu tilbúnir til að vera aðskildir í eina nótt.
Aðeins einn bangsi frá hverjum eiganda.
📖 Gott er að lesa eina góða sögu fyrir bangsann áður en honum er komið fyrir á safninu :)
Til baka í yfirlit
Loka
Var efnið á síðunni hjálplegt?